fbpx

TRENDNÝTT

HVERJIR VORU HVAR: GLÓ OPNAR AFTUR Á ENGJATEIG

KYNNING

Mikið fjör var á opnunarfögnuði Gló á Engjateig í Listhúsinu sem haldinn var í vikunni sem leið. Crossfit stjarnan Annie Mist mætti ásamt unnusta sínum Frederik, okkar eigin hetjur, Arnhildur Anna og Beggi Ólafs létu sjá sig ásamt mörgum öðrum góðum gestum. Staðurinn sem svo margir hafa saknað hefur opnað á ný!

Solla og Annie Mist fögnuðu opnuninni

Okkar eigin Arnhildur Anna og unnusti hennar Alfreð Hjaltalín

Birgir Bieltvedt og Solla – eigendur Gló

Heiðar Logi og Guðrún Sóley

Michette Pereboom, Dagný Gísladóttir framkvæmdastýra Gló og Eva Dögg Rúnarsdóttir

“Staðurinn er sérstaklega barnvænn, gott aðgengi og notaleg stemming fyrir alla aldurshópa” segir Dagný, framkvæmdastýra Gló.

Gestir smökkuðu gómsætan mat og skáluðu í íslenskt kombucha.

Gló á Engjateig verður með sérstaka áherslu á grænkerafæði og býður einnig upp á veglegan barnaseðil –  fjölskyldufólk ætti því að fjölmenna. Hönnun staðarins er einnig einstaklega vel heppnuð. Á boðstólnum verða morgunskálar allan daginn og gómsætar vegan súrdeigspizzur.

STRESSED SPELLED BACKWARDS IS DESSERTS

Nýi girnilegi Gló matseðillinn hefur strax vakið mikla lukku og er staðurinn opinn 11-17 virka daga.

Trendnet óskar vinum okkar á Gló til hamingju með vel heppnaðan stað!

//TREDNDET

TOPP 10 Á TAXFREE DÖGUM Í HAGKAUP

Skrifa Innlegg