fbpx

TRENDNÝTT

EKKI LÁTA VETRARLÍNU OMNOM FRAMHJÁ ÞÉR FARA

KYNNING

Enn á ný erum við komin í faðm vetrarins, hann læðist inn um gluggann og fær okkur til þess að hreiðra vel um okkur undir hlýju teppi þar sem við yljum okkur við bjarma kertaljóssins. Uppáhalds tími margra og vetrarlína Omnom getur orðið hinn fullkomi félagi í vetrar húminu.

Einstakt auga ljósmyndarans Kára Sverriss gefur okkur hlýju í hjartað og okkur byrjar að hlakka til notalegu stundanna sem framundan eru. Kári býr yfir ótrúlegum hæfileikum til þess að fanga augnablikið, leika sér með litapalletuna og skapa fallegan hugarheim með myndum sínum. Myndirnar hér að neðan eru sönnun þess, lesið lengra ..


Er góð bók, ilmandi kaffibolli og gott súkkulaði hin fullkomna þrenning til þess að verma sálina? Eflaust ..

Íslendingar þekkja orðið Vetrarlínu Omnom vel en síðustu árin hefur þessi vinsæla þrenna selst upp og því eru landsmenn hvattir til að næla sér í vetrarlínu Omnom áður það verður um seinan.

Vetrarlína Omnom er saga og ferðalag okkar í gegnum íslensku hefðirnar sem umvefja veturinn, hugsað til þess að ylja okkur um hjartarætur. Omnom sækir innblástur í matarhefðir, bragðtóna og venjur sem hringja inn jólin.

Vetrarlínan inniheldur þrjú súkkulaðistykki, kynnumst bragðtegundum betur –

Winter Collection 2021

Vetrarlínan okkar hefur alltaf haft ákveðinn sjarma yfir sér. Það er eitthvað við fagurfræðina og hugmyndina að vörulínunni sem vekur upp í okkur algjörlega einstaka kósý stemmningu. Þegar kom að því að huga að samstarfsaðila til að mynda verkefnið og fanga þá tilfinningu, þá kom einungis eitt nafn upp í huga okkar sem passaði fullkomlega við það sem við vorum að leitast eftir, Kári Sverriss, segir markaðsstjóri Omnom, Ásgeir Höskuldsson

 

Dark Nibs + Raspberries

Madagaskar kakó baunin á sérstakan stað í okkar hjarta. En hún er upphaf okkar, fyrsta ástin. Ást við fyrstu sín. Margslungnir, fíngerðir tónar og fislétt rauðberjabragðið gerir Madagaskar 66% súkkulaðið að einu stóru ástarævintýri fyrir bragðlaukana. Líkt og hefðin er á jólum, vildum við einnig klæða súkkulaðið okkar í sparifötin. Hátíðlega fagurrauð hindber með sinn sérstaka sæta keim, pöruð með vænlegu dassi af kakónibbum fullkomna pakkann. Nú er hátíð í bæ!

Milk + Cookies 

Ó, elsku jólin. Það er ómögulegt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hugann minning um piparkökur og glas af ískaldri mjólk. Við vildum ólm fanga þessa minningu og hófumst því handa við að setja saman uppskrift til að geta bakað hina fullkomnu krydduðu smáköku. Grunnurinn var unninn úr afgangs möndlum úr framleiðslunni okkar, tröllahöfrum og ríkulegu magni af engifer og kanil. Við lékum okkur með uppskriftina þar til jólaandinn sveif yfir okkur og fullkomnun var náð. Smákökurnar liggja í ljúfum faðmi Madagaskar mjólkursúkkulaðis og saman er þetta par ósigrandi. Helgi Björns mun sko aldeilis nenna jólunum eftir eitt svona!

Spiced White + Caramel

Appelsínur og malt. Malt og Appelsín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með appelsínuberki, kanil og stökkri karamellu. Þessi blanda kemur öllum í jólafíling. Flestir Íslendingar halda fast í þessa ríkulegu hefð af hátíðlegri bragðupplifun, sem er engri lík. Við vildum fanga þessa hefð með okkar eigin hætti í einstöku súkkulaði sem er sannkallaður óður okkar til jólanna.

Umbúðir vetrar súkkulaði Omnom voru hannaðar í samstarfi við listakonuna Jórinde.

TRENDNET MÆLIR MEÐ! Veljum íslenskt um jólin ..

//Trendnet

 

DÆTUR ANGELINU JOLIE KLÆDDUST KJÓLUM AF MÖMMU SINNI Á RAUÐA DREGLINUM

Skrifa Innlegg