fbpx

TRENDNÝTT

Billie Eilish flíkur hjá Divided

FÓLKKYNNING

H&M kynnir með stolti fyrstu «merch» línuna,  oft nefnt tónleikavarning, fyrir eina skærustu tónlistarstjörnuna í dag, Billie Eilish. Varningurinn samanstendur af víðum flíkum með einkennismerkjum söngkonunnar gríðarvinsælu. Herferðin fyrir línuna var í höndum listamannsins og förðunarfræðingsins Ines Alpha, en grafíkin sem einkennir línuna má einning finna á Snpachat sem filter. Billie Eilish varninginn fer í sölu á Íslandi rétt fyrir áramót, en línan verður fáanleg í H&M í Kringlunni og í Smáralind.

Billie Eilish kom fram á sjónarsviðið árið 2016 og er í dag ein stærsta og áhrifamesta stjarnan í tónlistarheiminum. H&M varningurinn samanstendur af einkennismerkjum Eilish og endurspeglar hennar persónulega stíl sem eru víð snið, stórir stuttermabolir, hettupeysur, stuttir og víðir kjólar og buxur í afslöppuðu sniði. Í heildina litið er línan afslöppuð en að sama skapi nútímaleg og töff. Allar flíkur í línunni eru úr efnum sem unnin eru á umhverfisvænari hátt, þá má helst nefna lífrænan bómull.

„Við erum ótrúlega spennt fyrir þessari línu. Billie Eilish er magnaður listamaður en líka manneskja sem ótal margir líta upp til og er þeim fyrirmynd, ekki síst þegar kemur að stíl og hvernig hún tjáir sig í gegnum tískuna. Við vildum gera aðdáendum hennar kleift að tengjast Eilish enn betur og fá útrás fyrir tjáningarfrelsinu, rétt eins og Eilish sjálf gerir svo snilldarlega vel” segir yfirhönnuður Divided hjá H&M, Emily Bjorkheim.


//
TRENDNÝTT

HVERJIR VORU HVAR: AK Pure Skin Iceland

Skrifa Innlegg