Mig langar í SKVÍS plaggat eftir Sigga Eggertsson.
Hann hélt sýningu í Spark Design Space fyrir u.þ.b. ári síðan sem ber nafnið SKVÍS og paraði þar saman 8 plaggöt sem mynda heildarmynd ef þau eru sett saman – hægt að gera á marga mismunandi vegu.
Ég get bara ekki ákveðið hvaða týpu mig langar í – get ekki valið á milli þriggja mynda.
Fæst í SPARK DESIGN SPACE og HÉR er vefsíðan hans Sigga.
Hver finnst ykkur flottust?
//Irena
Skrifa Innlegg