Minna en mánuður í jólin – þetta er það sem ég væri til í að fá í jólapakkana:
Svartur rússkinns kögurjakki – ég og Karin eigum brúnan en okkur vantar svartann! Helst þennann hann er of flottur. Sá einn í Spúútnik um daginn en hann var farinn þegar að ég tékkaði aftur.
Kerti eða ilm frá Völuspá. Fæst í Aftur og MAIA.
Góða og flotta myndavél, það verður alveg þreytandi að nota iphoninn.
Vörur frá Sóley Organics. Ég á eyGLÓ rakakremið og það virkar mjög vel fyrir mína húð. Ég hef líka prófað GRÆÐI en væri til í að prófa fleiri vörur.
Þessar Acne peysu – get ekki valið lit samt.
Silfur eyrnalokkasett frá Fashionology. Er með tvö göt sitthvorumegin í eyrunum en stefni á þessi fimm, eða kannski fjögur.
Gjafakort í Spúútnik eða Nostalgíu. Þá get ég valið mér eitthvað fínt sjálf. Það er hægt að ráða upphæð!
Work Lamp frá Design House Stockholm. Fæst í Hrím.
Þetta er allavegana eitthvað af því sem ég gæti hugsað mér að eiga!
//Irena
Skrifa Innlegg