Ég fann þenna fína kjól í Spúútnik Kringlunni í dag. Mér finnst sniðið mega fínt og ég fíla rendurnar á ermunum. Þegar Irena sýndi mér hann fyrst var ég ekki alveg viss, en þegar ég mátaði hann þá kom hann mjög vel út. Það besta er að hann kostaði litlar 3500 krónur. Ég er að pæla í að vera í honum á Íslensku tónlistarverðlaununum næsta föstudag, en við í Young Karin erum tilnefnd fyrir Nýliðaplötu ársins fyrir smáskífuna okkar N°1. Þið megið endilega kjósa okkur HÉR
Ekki fínn?
//Karin
Skrifa Innlegg