Ég hef nokkur instagröm sem ég er dugleg að skoða, en Mimi Elashiry er án efa uppáhalds instagrambloggarinn minn. Mimi er 18 ára tískubloggari og módel sem býr í Ástralíu og mér finnst stíllinn hennar æðislegur. Stíllinn hennar er boho en samt er hún algjör rokkari líka, fullkomin blanda.
Ég væri til í að eiga fataskápinn hennar, algjör töffari.
-
Ég hefði ekkert á móti því að fá að ferðast til Ástralíu eða Balí þar sem hún er oft, enda rosalega fallegir staðir.
Hún opnar nýtt blogg bráðlega og ég hlakka mega til.
Instagramið hennar er @mimielashiry.
//Karin
Skrifa Innlegg