Hrafnhildur – Slá: Morrow // Ég – Peysa: KR3W frá Noland
Ég fór á Bombay Bicycle Club tónleikana í Hörpu síðasta mánudag og var með þessar tvær á höfðinu. Mig langaði að hafa flétturnar frekar messy þannig ég gerði það bara frekar úfnar með því að tosa þær út, svona til hliðar.
Tónleikarnir voru magnaðir – mögulega topp 5 tónleikar sem ég hef séð! Næ því ekki hvað söngvarinn er góður. Þeir tóku bæði nýtt og gamalt, líka acoustic lög. Þetta hljómaði alveg eins og spilað beint af plötu. Þeir tóku lög af nýjustu plötu sinni So Long, See You To Morrow en ég er búin að hlusta mikið á hana undanfarið, mæli með fyrir þá sem hafa ekki heyrt! Hér eru nokkar myndir:
Jakki: Episode // Peysa: KR3W // Buxur: Dr. Denim // Skór: Jeffrey Campbell
Langar að sjá þessa tónleika aftur, var mega nice!
//Irena
Skrifa Innlegg