Ég var að fletta Instagram í fyrradag og sá þessa mjög svo spennandi mynd frá versluninni & Other Stories:
Það er svolítið síðan að verslunin kynnti samstarf sitt við sænsku tónlistarkonuna Lykke Li en hún er ein af mínum uppáhalds. Ég er því mjög spennt fyrir þessu samstarfi sem mun birtast í búðum og á netinu þann 4 september næstkomandi. Ég held að ég verði pottþétt að eignast allavegana eina flík úr línunni, jakkinn hér á myndinni fyrir neðan kallar pínu á mig.
Hér erum við systur svo með henni þegar hún spilaði á Íslandi í mars.
Gaman að segja frá því að H&M haustlínan kemur í búðir sama dag. Þarf maður að skreppa til DK þann 3. sept í smá verslunarferð? Það má allavegana skoða það.
//Irena
Skrifa Innlegg