Ég tók þessa mynd síðusta sunnudag þegar ég fór á Esjuna. Ég náði henni á Iphoninn á ferð í bíl en hún kom vel út miðað við aðstæður. Ég nota VSCOcam stundum til þess að breyta myndum eða ýkja liti og ýkti þessa aðeins en hún var samt flott fyrir. Haustlitirnir eru mega!
Mér finnst gaman að ná myndum af mismunandi landslagi þó það sé bara á símann.
Þessi er tekin rétt fyir utan Grindavík, man ekki alveg hvað staðurinn heitir.
Á leiðinni á LungA, einhversstaðar á Suðurlandi.
Á leiðinni heim frá AK-X í apríl, einhversstaðar nálægt Eyjafirði.
Er greinilega ekki vel að mér í staðarheitum á landinu – en landið er fallegt.
//Irena
Skrifa Innlegg