fbpx

Pattra S.

SNILLDAR BURT’S

 Þessi 100% nátturulegur Beeswax salvi maka ég á varirnar mínar fyrir svefninn en á daginn skarta ég auðvitað mínum uppáhalds Tinted Lip Balm.

Burt’s Bees  verður með event í Lyf&Heilsu Kringlunni í dag þar sem allir geta mætt með sinn gamla varasalva sem mögulega inniheldur paraben og í sumum tilfellum bensín, hent honum og fengið í staðinn þennan snilldar Beeswax salva gefins á meðan birgðir endast. Ótrúlega skemmtileg herferð til þess að vekja athygli á skaðlegu efnunum sem geta leynst í snyrtivörum en sjálf reyni ég algjörlega að sniðganga efni eins og paraben, ég hef sagt það áður -Því nátturulegra því betra!

Á sama tíma verður 20% afsláttur af allri Burt’s línunni í Lyfjum og heilsu ásamt því að sérfræðingar BB verða á svæðinu til þess að aðstoða við vöruval frá 16 til miðnættis í dag, 16-19 á föstudaginn og 12-16 á Laugardaginn. Fyrir ykkur sem eru út á landi er hægt að nálgast vörurnar á vefversluninni heimkaup.is að sjálfsögðu með 20% afslætti og fría heimsendingu, Go Burt’s!

PS

CARA DAGSINS

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Kristín María

    18. April 2013

    Ég er að hugsa um að kaupa einn Tinted Lip Balm á heimkaup.is…hver er í uppáhaldi hjá þér? Ég er að reyna að gera upp á milli Tinted Rose og Red Dahlia.

  2. Hildur

    18. April 2013

    Ég á einmitt þennan Beeswax frá Burt’s Bees, klárlega besti varasalvi sem ég hef prófað!