Þessi 100% nátturulegur Beeswax salvi maka ég á varirnar mínar fyrir svefninn en á daginn skarta ég auðvitað mínum uppáhalds Tinted Lip Balm.
Burt’s Bees verður með event í Lyf&Heilsu Kringlunni í dag þar sem allir geta mætt með sinn gamla varasalva sem mögulega inniheldur paraben og í sumum tilfellum bensín, hent honum og fengið í staðinn þennan snilldar Beeswax salva gefins á meðan birgðir endast. Ótrúlega skemmtileg herferð til þess að vekja athygli á skaðlegu efnunum sem geta leynst í snyrtivörum en sjálf reyni ég algjörlega að sniðganga efni eins og paraben, ég hef sagt það áður -Því nátturulegra því betra!
Á sama tíma verður 20% afsláttur af allri Burt’s línunni í Lyfjum og heilsu ásamt því að sérfræðingar BB verða á svæðinu til þess að aðstoða við vöruval frá 16 til miðnættis í dag, 16-19 á föstudaginn og 12-16 á Laugardaginn. Fyrir ykkur sem eru út á landi er hægt að nálgast vörurnar á vefversluninni heimkaup.is að sjálfsögðu með 20% afslætti og fría heimsendingu, Go Burt’s!
PS
Skrifa Innlegg