fbpx

Pattra S.

Í KVÖLD..

Við hjúin erum miklir aðdáendur danska fatamerkisins SUIT sem við kynntumst eftir að við fluttum til DK -gæðaflíkur á sanngjörnu verði. Það er því gleðiefni að nýverið opnaði SUIT-REYKJAVÍK á Skólavörðustíg, fyrsta Suit flagship búðin og eftir að hafa séð myndir hlakka ég mikið til að heimsækja þessa vel hönnuðu verslun. Í kvöld verður slegið til opnunarpartý frá 20-22 sem verður upplagt fyrir okkar fyrstu heimsókn, náum jafnvel að klára jólagjafastússið okkar í leiðinni.

Annars er voðalega ljúft að vera komin á eyjuna fögru og ég er ekki frá því að Grinchinn í mér þykir bara nokkuð skemmtilegt að snjórinn hafi tekið svona vel á móti okkur.. Allavega þar til ég renn á hausinn í slabbinu, treystið mér, það mun gerast!

1509160_462725223839818_730989321_n1477367_463108423801498_407857408_n971559_457132644399076_334424816_n1512769_462749697170704_2059384738_n1526896_463662277079446_1512736551_n

 

Sjáumst þar!

PATTRA

I'M BACK !!

Skrifa Innlegg