Ég og sambýlingurinn minn vorum að snæða fínustu máltíð áðan þannig að mér fannst upplagt að henda því hingað inn úr því að það er nokkuð langt síðan síðasta matarblogg. Ofsa einfaldur og góður marineraður kjúlli..
Fyrir ofninn.
Ferskur&ilmandi út úr ofninum!
Meðlæti, soðið grænmeti með sesamolíu og franskar bara útaf því að ég átti ekki hrísgrjón.
Í marineringunni: Kókósmjólk, ég notaði light uþb 2 litlar dósir. Engifer eftir smekk (ég notaði engifersmauk). Hvítlaukur eftir smekk (pressað). 1/2 Lime. Skvetta af Worchestersósu. Skvetta af Ostrusósu. Fersk Chillí eftir smekk. Graslaukur. Krydda eftir smekk, sjálf kryddaði ég bara örlítið með kóríander fræ – þurrkaðar salvía og salt&pipar.Ég blanda þessu bara öllu saman í eldafast mót svo set ég bitana(einnig gott að nota bringur) í og mauka öllu vel saman. Best væri ef kjúklingurinn fær að marinerast í dágóða stund en að þessu sinni hafði ég bara engann tíma til þess en bragðið var engu að síðu sterkt. Síðan set ég þetta inn í ofn í ca 45 mínutur og mikið var þetta æðislega gott.. bragðlaukarnir tóku trylltan dans.
PS
Skrifa Innlegg