Ég geri mjög oft fyllta svínalund með mismunandi fyllingum og í raun oft einhverju sem til er í ísskápnum.
Mér þykir þetta alltaf jafn gott og frábær réttur fyrir matarboð.
Þessi uppskrift er ekki flókin, inniheldur ekki mörg hráefni og allir ættu að ráða við hana.
Fyrir 4
Hráefni
1 svínalund
5-6 sneiðar af beikoni
6-7 smátt saxaðir sveppir
½ laukur smátt saxaður
2 pressaðir hvítlauksgeirar
2 stórar lúkur spínat
1 msk smátt saxaður graslaukur
Lúka af smátt saxaðri steinselju
Aðferð
- Byrjaðu á því að skera í miðja lundina, niður í svona ¾ af henni.
Skerðu þá út í báðar hliðar og reyndu að fletja hana út á brettið. Saltið og piprið yfir lundina. - Setjið geitaostinn í skál með saxaða graslauknum, steinseljunni, smá salt, pipar og blandið vel saman.
- Steikið laukinn og hvítlaukinn á pönnu við miðlungsháan hita þangað til hann er orðinn aðeins mjúkur,
bætið þá við sveppunum og spínatinu og steikið í 2-3 mínútur. - Raðið beikonsneiðum undir svínalundina. Smyrjið rjómaostablöndunni yfir hana og síðan sveppablöndunni.
Klemmið saman lundina og lokið með tannstöngli og beikoninu. - Setjið í eldfast mót með kartöflusneiðum í 200° ofn í 45 mínútur.
- Takið út úr ofninum og setjið álpappír yfir og leyfið henni að standa í 10 mínútur áður en þið berið hana fram.
Marta Rún
Skrifa Innlegg