Konudagshelgin er framundan og því finnst mér tilvalið að deila með ykkur uppskrift að dásamlegri Mimosu með prosecco, appelsínusafa og Cointreau. Einfalt og gott. Frábært að bjóða uppá með konudagsbrönsinum á sunnudaginn. Við konurnar eigum svo sannarlega skilið að njóta með mimosa og ljúffengum bröns!
1 kokteill
75 ml appelsínusafi
75 ml Lamberti Prosecco
1 cl Cointreu
Appelsínusneið til að skreyta
Aðferð
-
Hellið appelsínusafa í fallegt glas.
-
Því næst hellið Prosecco og Cointreau.
-
Skreytið með appelsínusneið og njótið.
Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið ;)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & GÓÐA HELGI !
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg