Jarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn 🌹🥂 Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem er mjög ljúffengur.
Eina sem þú þarft er:
Grillspjót eða kokteilpinnar
Borði
Driscolls jarðarber
Toblerone
Aðferð
- Skerið í jarðarberin þannig að þau mynda rósir (sjá aðferð hér: www.instagram.com/reel/C3TYaBmoAcJ/).
- Skreytið pinnana með slaufum og stingið þeim í jarðarberin.
- Bræðið Toblerone yfir vatnsbaði og berið fram með jarðarberjarósunum. Njótið vel.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg