fbpx

HELGARKOKTEILLINN: HÁTÍÐAR IRISH COFFEE

DRYKKIRUPPSKRIFTIR

Það er eitthvað svo notalegt að fá sér heitan og ljúffengan drykk í skammdeginu þegar farið er að kólna úti. Irish coffee er þá sannarlega viðeigandi en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hér kemur uppskrift að slíkum drykk í hátíðarbúningi en ég nota Fireball whiskey líkjör með heitu kanilbragði sem gerir drykkinn svo einstaklega ljúfan.

Fyrir einn
6 cl Fireball líkjör
250 ml kaffi
2 tsk púðursykur
Rjómi
Súkkulaðispænir
Kanill

Aðferð 

  1. Blandið saman púðursykri og kaffi í glas. Hrærið saman þar til púðursykurinn er uppleystur.
  2. Hellið Fireball whiskey útí og hrærið saman.
  3. Léttþeytið rjóma. Mér finnst gott að hann sé léttur og froðukenndur.
  4. Setjið 2-3 msk af rjómanum ofan á drykkinn og stráið súkkulaðispæni og kanil yfir. Njótið vel.

GÓÐA HELGI & NJÓTIÐ VEL! 

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

DÁSAMLEGT HUMARPASTA

Skrifa Innlegg