Helgarkokteillinn að þessu sinni er moscow mule með bláberja og rósmarín twisti sem gerir kokteilinn einstaklega ljúfan. Moscow mule hefur lengi verið í uppáhaldi hjá Birni, manninum mínum og þessi útgáfa sló alveg í gegn hjá honum og ég er honum sammála. Drykkurinn inniheldur vodka, bláber, engiferbjór, rósmarín og kanil. Frískandi og ljúfur drykkur sem er tilvalið að njóta um helgina.
Fyrir einn
4 cl vodka
2 cl bláberja mickey finns
½ dl fersk bláber
2 dl engiferbjór
Klakar
4 cl vodka
2 cl bláberja mickey finns
½ dl fersk bláber
2 dl engiferbjór
Klakar
1 rósmarín stöngull
1 kanilstöng
Aðferð
- Hellið vodka, mickey finns og bláberjum í glas. Merjið þetta vel saman með kokteilamerjara.
- Hellið engiferbjór saman við og fyllið glasið með klökum.
- Setjið rósmarín stöngul og kanilstöng ofan í og njótið.
SKÁL & GÓÐA HELGI! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg