
Í kvöld er komið að úrslitakeppni Eurovision og veljum við okkar framlag sem keppir síðan í Stokkhólmi í vor. Er ég spennt? Já. Enda forfallin Eurovision aðdáandi og auðvitað ætlum við að horfa á keppnina í kvöld, þá er tilvalið að skella í eitthvað gott og borða á meðan keppninni stendur. Ég ætla að gera þennan stökka og góða kjúkling í Doritos hjúp, ég hef áður gert svipaða uppskrift og notað Kornflex en svei mér þá ef þessi er ekki betri – kjúklingurinn er mikið stökkari og þetta er algjört sælgæti. Laugardagsmatur þegar maður vill fá sér eitthvað svolítið gott. Uppskriftin er líka afar einföld og það þarf ekki að kaupa mörg hráefni, semsagt einfalt og þægilegt.
Njótið vel og eigið gott laugardagskvöld framundan.

Doritos kjúklingur
700 g kjúklingakjöt, ég notaði lundir
6 msk sýrður rjómi
1 tsk papriku krydd
1 tsk mexíkósk kryddblanda
salt og pipar
1 poki appelsínugulur Doritos
ólífuolía
Sósa:
1 dós sýrður rjómi
5 – 6 msk salsa sósa
Aðferð:
Skerið kjúklingabitana í jafn stóra bita.
Blandið saman í skál sýrða rjómanum, paprikukryddi, mexíkóskri kryddblöndu, salti og pipar og hrærið vel saman. Þekjið kjúklingabitana með sósunni og geymið í kæli í 30 mínútur.
Myljið snakkið í matvinnsluvél en ef þið eigið ekki matvinnsluvél þá getið þið barið á snakkið með t.d. kökukefli.
Veltið kjúklingabitunum upp úr snakkinu og leggið síðan á pappírsklædda ofnplötu. Sáldrið smávegis af ólífuolíu yfir og eldið við 180°C í 20 – 25 mínútur.
Berið fram með léttri salsasósu og fersku salati.
Sósan aðferð:
Blandið sýrða rjómanum og salsasósu saman í skál og berið fram með kjúklingabitunum.

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Saltkaramella er gríðarlega vinsæl um þessa mundir og það má segja að árið 2015 hafi verið ár saltkaramellunar. Ég gjörsamlega elska þessa söltuðu karamellusósu og nota hana óspart. Mér fannst við hæfi að enda árið á alvöru súkkulaðibombu með saltkaramellusmjökremi, saltkaramellusósu og poppkorni með saltaðri karamellu. Sem sagt, saltkaramellu hinmaríki. Ég lofa ykkur að þið verðið ekki vonsvikin, hún er algjört sælgæti og passar fullkomnlega í áramótpartíið. Hún grípur augað strax og er svolítið mikil en það er nú þannig á áramótunum að allt er leyfilegt.
Saltkaramellubomba
Súkkulaðibotnar
3 bollar hveiti (1 bolli = 2,5 dl)
2 bollar sykur
3 egg
2 bollar AB mjólk
1 bolli bragðlítil olía (ekki nota ólífuolíu)
5-6 msk. kakó
2 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Matarsódi
2 tsk. Vanillu exctract eða vanillusykur.
Aðferð: Hitið ofninn í 180°C (blástur). Blandið öllum hráefnum saman og hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið er orðið silkimjúkt. Smyrjið tvö lausbotna form og skiptið deiginu niður í formin. Bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur. Tíminn fer auðvitað eftir ofnum, eins og alltaf. Gott er að athuga baksturinn með því að stinga prjóni í kökuna, prjóninn á að koma hreinn út og þá er kakan klár. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en þið setjið á þá krem.
Saltkaramellukrem
300 g smjör, við stofuhita
500 g flórsykur
4 msk karamellusósa (sjá uppskrift hér að neðan)
1 – 2 tsk vanilla extract eða sykur
1 – 2 msk rjómi eða mjólk
Aðferð: Það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir þetta krem. Þeytið saman smjör og flórsykur í 5 – 6 mínútur, stoppið tvisvar sinnum og skafið meðfram hliðum.Næsta skref er að bæta vanillu og rjóma/mjólk. Ég vil að kremið sé mjög mjúkt og þess vegna finnst mér frábært að nota smá rjóma en það er auðvitað hægt að nota mjólk líka. Þeytið kremið í 4 mínútur til viðbótar eða þar til þið eruð ánægð með kremið. Smyrjið kreminu á milli botnanna og yfir alla kökuna. Setjið kökuna í kæli eða inn í frysti í svona klukkustund áður en þið hellið karamellusósunni yfir, en með því að gera það þá bráðnar kremið ekki.
Söltuð karamellusósa
Hráefni:
200 g sykur
2 msk smjör
½ – 1 dl rjómi
½ tsk sjávarsalt
Aðferð: Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við. Leyfið sósunni að kólna alveg áður en þið hellið henni yfir kökuna.
Skreytið kökuna með poppkorni með saltaðri karamellu, ég blandaði 1 msk af saltri karamellu við smávegis af poppkorni.

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Ris a la Mande er einn af mínum eftirlætis eftirréttum og nauðsynlegt að bera hann fram um jólin. Það kannast nú sennilega flestir við þennan eftirrétt og er hann mjög vinsæll á mörgum heimilum, enda er það enginn furða – hann er einstaklega góður. Rjómakenndur grautur með berjasósu og stökkum möndlubitum, þarf ég nokkuð að segja meira?

Ris a la Mande
Grauturinn:
- 2 1/4 dl grautargrjón
- 1 L nýmjólk
- 1 -2 vanillustangir
- smá salt
- 50 g hvítt súkkulaði
Aðferð:
- Penslið pott með smá smjöri en það kemur í veg fyrir að grjónin og mjólkin brenni við.
- Hellið mjólkinni í pottinn og leyfið suðunni að koma upp, bætið þá grjónunum út í pottinn og hrærið vel í.
- Kljúfið vanillustöngina í tvennt, skafið fræin innan úr og setjið í pottinn.
- Sjóðið grautinn við vægan hita í 35 – 40 mínútur. Hrærið af og til í pottinum, það er mjög auðvelt að brenna grautinn við og þess vegna þarf að fylgjast vel með.
- Þegar grauturinn er tilbúinn bætið þið smátt söxuðu hvítu súkkulaði saman við og hrærið, súkkulaðið bráðnar í grautnum og gefur honum einstaklega fallega áferð. En auðvitað megið þið sleppa súkkulaðinu ef þið viljið. (en hver vill sleppa súkkulaði?);)
- Kælið grautinn mjög vel áður en þið útbúið Ris a la Mande. Best er að gera grautinn deginum áður og þá kólnar hann í rólegheitum yfir nótt.
Ris a la Mande
- 1 skammtur grautur (uppskriftin hér að ofan)
- 200 ml rjómi
- 2 msk flórsykur
- 100 g möndlur, hakkaðar og ristaðar
- kirsuberjasósa
- fersk kirsuber
Aðferð:
- Þeytið rjóma og bætið flórsykrinum saman við.
- Blandið rjómablöndunni saman við grautinn með sleikju.
- Hakkið möndlur, ristið þær og kælið. Þegar þær eru kaldar þá bætið þið þeim við grautinn, mér finnst ágætt að setja 70% í grautinn en geyma 30% af möndlunum til skrauts.
- Hellið nú grautnum í fallega skál eða skálar. Ég keypti tilbúna kirsuberjasósu sem mér þykir einstaklega góð og hellti yfir grautinn. Sáldraði möndlum yfir og skreytti með nokkrum ferskum kirsuberjum.
- Kælið grautinn áður en þið berið hann fram.

Njótið vel.
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Í vikunni kom út hátíðarbæklingur Hagkaups og þar má finna ljúffengar uppskriftir fyrir jólin. Kalkúnn, önd, nautakjöt og miklu meira í fallegu blaði sem þið getið skoðað hér. Ég er að minnsta kosti búin að velja nokkra rétti sem mig langar að prófa núna um jólin en ég er til dæmis ein af þeim sem er aldrei með það sama á aðfangadag og nýt þess að prófa eitthvað nýtt og gott. Í blaðinu má finna nokkrar uppskriftir eftir mig, þar á meðal after eight ísterta sem fangar bæði augað og leikur við bragðlaukana. Ég elska þessa tertu og hlakka til að bjóða fjölskyldunni upp á hana um jólin. Tilvalin sem eftirréttur eða þá með kaffinu yfir hátíðarnar <3

After eight ísterta
Botnar
• 4 eggjahvítur
• 4 dl púðursykur
Aðferð:
Stillið ofn á 110°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu eða bökunarpappír í botninn á tveimur 22 cm lausbotna formum og smyrjið hliðarnar með smjöri. Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykri saman við í smáum skömmtum. Stífþeytið þar til blandan hreyfist ekki til í skálinni sé henni hvolft. Skiptið marengsblöndunni á bökunarpappírinn eða í formin og bakið í 1 ½ klst við 110°C.
Ís fyllingin
• 500 ml rjómi
• 2 eggjarauður
• 4 tsk flórsykur
• 1 tsk vanillusykur eða dropar
• 200 g after eight súkkulaði
Ofan á
Suðusúkkulaði
Färsk ber
Aðferð: Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til eggjablandan verður ljós og létt. Þeytið rjóma og bætið eggjablöndunni varlega saman við rjómann með sleif ásamt vanillu. Í lokin fer súkkulaðið út í rjómablönduna. Setjið kremið á milli botnanna og ofan á. *Best er að setja plastfilmu í formið en þannig er betra að ná kökunni upp úr forminu og sömuleiðis er gott að nota smelluform.
Kakan fer inn í frysti í nokkrar klukkustundir og þegar þið berið hana fram er gott að bræða suðusúkkulaði yfir vatnsbaði og dreifa yfir kökuna. Skreytið hana svo með ferskum berjum og saxið niður meira súkkulaði og skreytið – það er aldrei nóg af súkkulaði!

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Smákökusamkeppni KORNAX hefur verið haldin í aðdraganda jólanna undanfarin ár og ég hef verið svo heppin að fá að dæma í keppninni síðastliðin tvö ár. Í keppninni keppa áhugabakarar um besta jóla smákökuna og það er hreint ótrúlegt hvað það eru margar ómótstæðilegar kökur í keppninni, það er ekki auðvelt að dæma í keppni sem þessari skal ég ykkur segja. Ég fékk leyfi til þess að birta nokkrar uppskriftir sem ég mæli með að þið prófið, ég er sífellt að leita að góðum smáköku uppskriftum fyrir jólin og hér eru þrjár uppskriftir sem stóðu upp úr í smákökukeppninni í ár og því tilvalið að baka þær fyrir jólin og njóta.

1.sæti: Steinakökur. Höf: Andrea Ida Jónsdóttir

2. sæti: Pipplingar. Höf: Ástrós Guðjónsdóttir

3.sæti: Heslihnetu karamellu kökur. Höf: Lilly Aletta Jóhannsdóttir.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Um helgar er tilvalið að nostra svolítið við morgunmatinn og í morgun útbjó ég þessar einföldu og gómsætu eggja- og beikonskálar. Ég mun pottþétt bera þessi egg fram í næsta brönsboði en þau er ótrúlega góð, maður fær allt í einum bita. Stökkt beikon, stökkt brauð og silkimjúkt egg. Ef þið eigið ferskar kryddjurtir er tilvalið að nota þær með og ég átti ferskt timían sem ég sett ofan á eggja- og beikonskálarnar mínar. Það mætti segja að þetta væri lúxus byrjun á deginum og ég mæli svo sannarlega með að þið prófið.

Himneskar eggja- og beikonskálar.
Uppskriftin miðast á við fjóra manns en það er ekki óvitlaust að tvöfalda skammtinn enda er þessi uppskrift mjög góð og ekki ólíklegt að fólk vilji tvær múffur.
4 beikonsneiðar
4 brauðsneiðar
4 Brúnegg
Salt og nýmalaður pipar
Ferskar kryddjurtir eftir smekk t.d. timían eða steinselja
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C (blástur)
Skerið skorpuna af brauðinu og mótið litlar skálar með brauðinu með því að þrýsta brauðinu á botninn á eldfasta múffu forminu.
Vefjið eina beikonsneið utan um hverja brauðsneið og setjið í eldfasta múffu formið.
Brjótið eitt egg í hverja skál.
Kryddið til með salti, pipar og ferskum kryddjurtum.
Bakið við 180°C í ca. 10 mínútur. Fylgist með eggjunum en þau eru tilbúin þegar eggin eru stíf.
Berið fram og njótið með morgunkaffibollanum.

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Desember er genginn í garð og lætur heldur betur til sín taka. Veðrið er ekki upp á sitt besta eins og þið hafið eflaust tekið eftir og ekkert gott að vera að þvælast úti við ef erindið er ekki brýnt. Ég legg til að þið fáið ykkur þennan ómótstæðilega súkkulaðibolla, komið ykkur vel fyrir með teppi og njótið. Það er líka í fínasta lagi að setja eina jólamynd í tækið og finna jólaandann hellast yfir ykkur. Ég sit hér með hópnum mínum að læra undir próf, við erum búin að kveikja á kerti og koma okkur vel fyrir. Ætlum ekki að færa okkur um set í allan dag og ég vona að þið eigið góðan dag þrátt fyrir leiðindaveður.
Piparmyntusúkkulaði
1 líter mjólk
175 g suðusúkkulaði
1 stk pipp súkkulaði (40 g)
2 dl vatn
smá salt
Hitið vatn og látið súkkulaðið bráðna í því, passið ykkur á því að sjóða ekki vatnið. Hrærið vel í á meðan. Þegar súkkulaðið er bráðið þá bætið þið mjólkinni út í og hitið þar til fer að sjóða. Að lokum þá bætið þið smá salti út í, leyfið þessu að malla í smá stund við vægan hita.
Mér finnst best að þeyta rjóma og setja væna skeið af rjóma í minn bolla, en það er líka dásamlegt að setja vanilluís út í.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Það kannast flestir við þetta brauð en það kallast pottabrauð og er án efa einfaldasta brauð í heimi. Í gærkvöldi áður en ég fór að sofa blandaði ég nokkrum hráefnum saman og leyfði deiginu að lyfta sér yfir nótt, í morgun þurfti ég eingöngu að hnoða það örlítið og skella því inn í ofn. Ég hef áður deilt uppskriftinni með ykkur en mig langaði að deila henni enn og aftur. Ég bætti fersku rósmaríni og hvítlauk saman við deigið að þessu sinni og það kom afar vel út. Það er mikilvægt að nota steypujárnspott þegar þið bakið þetta brauð, útkoman verður ekki sú sama í öðrum formum. Ef þið eigið ekki steypujárnspott þá er tilvalið að skella honum á óskalista fyrir jólin, bestu pottarnir sem ég hef átt og ég nota þá mjög mikið bæði í bakstur og í matargerðinni.
Hér er uppskriftin og ég vona að þið njótið vel.

Pottabrauð með rósmarín og hvítlauk
470 g brauðhveiti frá Kornax
370 ml volgt vatn
1 tsk salt
1/4 tsk þurrger
1 msk ferskt rósmarín
2 hvítlauksrif
Aðferð:
Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið vatni saman við. Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið við stofuhita í að minnsta kosti tólf klukkustundir.
Hellið deiginu á hveitistráðborð og stráið smá hveiti yfir deigið. Saxið rósmarín og hvítlauk mjög smátt og blandið við deigið.
Hnoðið deigið rétt aðeins í höndunum og brjótið það saman þannig að það myndi kúlu.
Smyrjið ofnpott með olíu og setjið pottinn inn í ofn við 230°C.
Takið pottinn út úr ofninum, setjið brauðið í pottinn og inn í ofn í 30 mínútur. Þegar 30 mínútur eru liðnar takið þið lokið af pottinum og bakið áfram í 10 – 15 mínútur.

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Á laugardaginn fór fram landssöfnun Samhjálpar til uppbyggingar á meðferðarheimilis í Hlaðgerðarkoti. Söfnunin gekk frábærlega og við söfnuðum rúmlega 80 milljónum sem er algjörlega frábært, það var svo gaman að fá að taka þátt í söfnuninni en við Ásgeir Erlendsson vorum í símaverinu með fullt af skemmtilegu fólki. Ég var svo sátt og sæl þegar ég vaknaði í gærmorgun að ég varð að baka eina gómsæta köku. Mig langaði auðvitað í súkkulaðiköku og ég átti til ljúffenga karamellusósu sem passaði fullkomnlega með súkkulaðinu. Úr varð sænsk kladdkaka með þykkri karamellusósu. Þið ættuð að skella í þessa köku sem allra fyrst, lofa að þið eigið eftir að elska þessa.

Mjúk súkkulaðikaka með fljótandi karamellusósu
150 g smjör
2 Brúnegg
2 dl sykur
3 dl Kornax hveiti
1 tsk lyftiduft
2 tsk vanilla extract (eða dropar/sykur)
4 msk kakó
Ögn af salti
3 – 4 msk Dulce de leche karamellusósa
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C.
Bræðið smjör við vægan hita.
Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
Blandið þurrefnum saman og blandið varlega saman við eggjablönduna með sleif.
Hellið smjörinu og vanillu saman við og hrærið með sleif, saltið smávegis.
Smyrjið form og hellið deiginu í formið.
Setjið karamellusósuna yfir deigið.
Bakið við 180°C í 18 – 20 mínútur, kakan á að vera svolítið blaut.
Kælið á meðan þið útbúið kremið.
Súkkulaðikremi með karamellusósu
70 g smjör
120 g suðusúkkulaði
2 msk síróp
smávegis af salti
2 msk Dulce de leche
Aðferð:
Brjótið súkkulaðið og bræðið saman við smjörið við vægan hita, ekki fara frá pottinum. Það er mjög auðvelt að brenna þessa góðu sósu.
Bætið sírópinu og karamellusósunni við í lokin, hrærið saman og hellið yfir kökuna.
Berið kökuna fram með flórsykri og þeyttum rjóma, ég lofa ykkur því að kakan mun slá í gegn.

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir