fbpx

Eva Laufey Kjaran

Ljúffeng Silvíu kaka

Matargleði

IMG_1693

Sunnudagsbaksturinn að þessu sinni er dásamleg Silvíu kaka en kakan þykir vera í eftirlæti hjá Silvíu, drottningu Svíþjóðar. Mér finnst þessi kaka mjög ljúffeng og ég bakaði hana ansi oft í fæðingarorlofinu mínu. Virkilega einföld og góð kaka sem ég mæli með að þið prófið.

Silvíu kaka

3 egg

3 dl sykur

1,5 dl kalt vatn

3 tsk lyftiduft

3 dl Kornax hveiti

Glassúr

100 g smjör

1, 5 dl flórsykur

2 eggjarauður

2 tsk vanillusykur

Kókosmjöl til skreytinga

Aðferð: Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Sigtið hveitið og lyftiduftið saman við. Í lokin bætið þið vanillu og vatni við og hrærið í 1 – 2 mínútu. Smyrjið hringlaga form og hellið deiginu í formið (það er hægt að nota ofnskúffu en þá er ágætt að tvöfalda uppskriftina).

Bakið við 175°C í 20 – 22 mínútur.

Leyfið kökunni að kólna þegar hún er komin út úr ofninum og útbúið glassúr á meðan.

Bræðið smjör og bætið eggjarauðum, sykri og vanillusykri saman við og leyfið þessu að malla í smá stund. Hrærið vel í kreminu, þegar það er orðið þykkt og fínt þá er það tilbúið.

Dreifið kreminu yfir kökuna og skreytið með kókosmjöli. Þetta er klárlega kakan sem þið eigið eftir að baka aftur og aftur, hún er ekki bara einföld heldur er hún virkilega gómsæt.

Njótið vel.

 

xxx

 

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Djúsí pizzur á þrjá vegu

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Ragna

    19. May 2015

    ég hafði smakkað þessa köku áður og hún er virkilega góð þannig að ég ákvað að prófa að baka hana sjálf um helgina. Í aðferðahlutanum hjá þér fyrir botninn segir “Í lokin bætið þið vanillu og vatni við” en hvergi í uppskriftinni stendur neitt um vanillu í kökunni sjálfri, bara vanillusykur í kreminu. Hvað áttu við með vanillu? Ég endaði á að skutla bara smá vanilludropum í kökuna og hún smakkaðist mjög vel! En ágætt að fá þetta á hreint næst þegar ég baka hana því eins og þú segir, þetta er pottþétt kaka sem maður bakar aftur og aftur, svo ótrúlega einföld, fljótleg og gómsæt.

  2. Elísa Jóhannsdóttir

    19. May 2015

    Hljómar vel.
    En eiga að vera vanilludropar í kökudeiginu?
    Þú segir að lokum á að setja vanillu og vatn saman við en engin vanilla er í listanum yfir innihaldsefni nema fyrir glassúrinn :)

  3. Elfa

    20. May 2015

    Það vantar eitthvað í þessa uppskrift , er það ekki vanillan ?