fbpx

Eva Laufey Kjaran

Djúsí pizzur á þrjá vegu

IMG_1663

Einfalt og gott pizzadeig sem hefur reynst mér mjög vel, það tekur enga stund að gera deigið en það þarf smá tíma til að lyfta sér. Á meðan deigið er að lyfta sér er gott að nýta tímann til góðra verka t.d. að útbúa áleggið sem fer ofan á pizzurnar. Ég elska góðar pizzur og þessar þrjár eru algjört lostæti, ég segi það satt. Vinkonur mínar komu í mat í síðustu viku og mér fannst tilvalið að bjóða þeim upp á pizzu, þær voru ánægðar með matinn og áttum við einstaklega skemmtilegt kvöld saman.

Pizzadeig

2 1/2 dl volgt vatn
25 g þurrger
2 tsk hunang
2 msk ólífuolía
350 – 400 g brauðhveiti frá Kornax
Aðferð: Leysið gerið upp í volgu vatni og það er afar mikilvægt að gerið sé volgt. Bætið hunangi saman við og hrærið vel í. Þegar byrjar að freyða í skálinni er gerið klárt. Blandið olíu og hveitinu saman við í hrærivélaskál. Þið getið auðvitað hnoðað deigið í höndunum en mér finnst langbest að nota hnoðarann á hrærivélinni, það ferli tekur um það bil 4 – 6 mínútur. Deigið er tilbúið þegar það er orðið að kúlu og klístrast ekki við hrærivélaskálina. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefa sig í klukkustund.

IMG_1676
Pizza með hráskinku

1 pizzadeig
1 skammtur pizzasósa (mér finnst líka gott aðsetja tómata passata)
Rifinn ostur
1 bréf hráskinka ca. 8 sneiðar
Klettasalat, magn eftir smekk
Hægeldaðir tómatar (Skerið kirsuberjatómata í tvennt og leggið þá í eldfast mót, hellið smávegis af olíu yfir og kryddið til með salti og pipar. Bakið í ofni við 150°C í 1,5 – 2 klst. Því lengur sem þeir eru í ofninum því betri verða þeir)
Parmesan ostur
Salt og nýmalaður pipar
Aðferð: Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið botninn með sósunni og dreifið rifnum osti yfir. Setjið hráskinku yfir og bakið við 220°C í 10 – 12 mínútur. !Ofnar eru auðvitað misjafnir og það gæti verið að þið þurfið að baka hana lengur en pizzan er klár þegar pizzan er gullinbrún og hráskinkan stökk.

IMG_1687

Pizza með forsteiktu beikoni og rjómaosti

1 pizzadeig
1 skammtur pizzasósa (mér finnst gott að nota tómata passata)
Rifinn ostur
100 g forsteikt beikon
Rauð paprika, smátt skorin
Hreinn rjómaostur, magn eftir smekk
Salt og nýmalaður pipar
Fersk basilíka
Aðferð: Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið botninn með sósunni og dreifið rifnum osti yfir. Steikið beikon og þerrið á eldhúspappír, raðið því á pizzuna og dreifið paprikunni yfir. Setjið nokkrar matskeiðar af rjómaosti á pizzuna og verið ekkert að spara hann. Bakið við 220°C í 10 – 12 mínútur. !Ofnar eru auðvitað misjafnir og það gæti verið að þið þurfið að baka hana lengur en pizzan er klár þegar pizzan er gullinbrún. Þegar pizzan er komin út úr ofninum er gott að setja nokkur fersk basilíkulauf yfir.

IMG_1678
Vinsælasta pizzan í boðinu

Einn skammtur pizzadeig
1 dós sýrður rjómi
1 villisveppaostur
1 hvítlauksrif
Salt og nýmalaður pipar
200 g sveppir steiktir upp úr smjöri og hvítlauk
Hægeldaðir tómatar
Smátt söxuð steinselja
Aðferð: Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Rífið niður villisveppaostinn og hrærið saman við sýrða rjómann, pressið hvítlauksrifið og blandið saman við. Kryddið til með salti og pipar. Smyrjið ostablöndunni á botninn.

Steikið sveppina upp úr smjöri og pressið eitt hvítlauksrif út í pottinn, þerrið sveppina vel áður en þið setjið þá á pizzuna. Bakið við 220°C í 10 – 12 mínútur. !Ofnar eru auðvitað misjafnir og það gæti verið að þið þurfið að baka hana lengur en pizzan er klár þegarr hún er gullinbrún. Það er mjög gott að setja hægeldaða tómata og smátt saxaða steinselju yfir pizzuna í lokin.

 

Ég mæli með að þið prófið þessar pizzur um helgina og það er ekki verra að njóta þeirra í góðra vina hópi.

Njótið vel!

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Súkkulaðipönnukökur með ristuðum pekanhnetum

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Hulda

    29. May 2015

    Ofsalega girnilegar pizzur hjá þér! Lumarðu nokkuð á uppskrift að góðri pizzasósu? Ég er búin að prófa nokkrar sem mér finnst yfirleitt svo bragðlausar miðað við það sem maður fær á pizzastöðum…