fbpx

TRENDÁSA

PersónulegtTrendnet

 

Fyrr í vikunni hringdi Marín Manda blaðakona hjá Lífinu, fylgiblaði Fréttablaðsins, í mig og spurði mig stuttlega út í bloggið mitt sem ég hef haldið úti í 7 ár, hver ég er og hvað ég er að gera þessa dagana. Ég reyndi að svara sómasamlega í þetta skiptið en fyrir ykkur sem viljið vita örlítið meira um mig getið þið séð viðtalið hér.

Annars vona ég bara að þið munið hafa gaman hér með mér en ég mun gera mitt besta í að koma með skemmtilega og lifandi pósta, svona eins og kollegar mínir hér á Trendnet gera svo vel.

Eigið góðan laugardag – ég ætla að njóta hans úti í blíðunni í miðborg Verona.

NÝTT FRÁ IITTALA

Skrifa Innlegg