fbpx

SUNNUDAGUR Í FENEYJUM

FerðalögInstagramVerona

unnamed-13

unnamed-12

unnamed-15

unnamed-18

unnamed-17

unnamed-14

unnamed-20

unnamed-19

unnamed-16

Frídagurinn var vel nýttur í þetta skiptið en við Emil tókum gestina okkar til Feneyja. Feneyjar eru einungis í um einnar klukkustundar fjarlægð frá Verona og því frábært að hoppa upp í lest og eyða deginum þar. Að rölta um þröngar göturnar er alveg æðislegt, húsunum er vel við haldið og í öllum regnbogans litum sem fær mann til að brosa. Einnig er dásamlegt að sjá hvernig fólkið lifir, þvotturinn hangir á milli húsanna, bátarnir geymdir í þar til gerðum “bílskúrum” og ruslapokarnir hanga á húsunum tilbúnir fyrir öskubátinn sem sækir þá og flytur til eyðingar.

Að sigla um síkin í gondólum er síðan eitthvað sem allir verða að prufa. Ef það er ekki komið á bucket-listann ykkar nú þegar, endilega skrifið það þá niður núna. Kyrrðin sem liggur í loftinu er engu lík en þar sem það eru engir bílar á svæðinu er þögnin mikil. Við hjónin hefðum helst viljað sofna við ölduniðinn í þessari bátsferð en svo huggulegt var þarna hjá okkur.

Myndirnar segja ekki nema hálfa söguna en sjón er svo sannarlega sögu ríkari í þessu tilfelli.

KAUP DAGSINS: STELLA McCARTNEY X ADIDAS

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

    • Hildur Ragnarsdóttir

      9. April 2014

      hópferð í heimsókn til Ásu? ég dey mig langar svo mikið að koma til feneyja og verona!!

      xx

  1. Dagbjört systir

    7. April 2014

    Hahahahaha Looking good sistahhh!!! hlakka ggt að gera svona í sumar!!