Sjáið þið hvað þessir fínu og mjúku kasmírtreflar heita ?
.. ” fyrir einstakt og gallalaust útlit” samkvæmt heimasíðu LV.
Gaman að´essu :-)
Sjáið þið hvað þessir fínu og mjúku kasmírtreflar heita ?
.. ” fyrir einstakt og gallalaust útlit” samkvæmt heimasíðu LV.
Gaman að´essu :-)
Neihhh – en skemmtilegt.. væri ekki leiðinlegt að eiga einn svona!
104 þúsund krónur fyrir trefil. Sjæse……þvílíkt rugl.
“einstakt” útlit? Meira svona LV lógó útlit eins og endalaus varningur frá þeim og borið af hálfri Asíu.
Eflaust mjög mjúkir og hlýjir og fegurð þeirra er hlutlægt mat – en að vilja borga 635 € fyrir trefil merktan í bak og fyrir þar sem ekki fer á milli mála hversu mikið var borgað fyrir hann, er mér óskiljanlegt.
Mikið rosalega getur fólk verið neikvætt. Ég þekki mann sem safnar frímerkjum. Ef hann tæki nú uppá því að panta sér 150 þús kr alveg sérstakt frímerki á Ebay, er það þá mitt að hneykslast á? Ég hef nákvæmlega engan áhuga á frímerkjum, en væri hins vegar himinlifandi með einn svona trefil í fataskápnum… enda forfallin LV aðdáandi ;)
Snýst þetta ekki bara um smekk og áhugamál, drauma og langanir. Snýst lífið síðan ekki bara um það að láta sig dreyma, stundum rætast svo draumarnir, hverjir sem þeir nú eru. Svo er náttúrulega alltaf mikilvægt að kunna að meta það sem maður hefur og gefa eitthvað af sér geti maður það.
Allavega bjútifúl trefill og æðislegt blogg !
:-)
Hélt að það væri hér pláss fyrir ólíkar skoðanir og þar af leiðandi ríkari umræðu, hvort sem varðar hönnun eða annað – Ég hef lengi lesið bloggið hennar Ásu og finnst hún hafa einstaklega smekklegan smekk og stíl, án þess að þekkja hana virðist hún líka jákvæð manneskja, sem er aðdáunarverður eiginleiki, og þrátt fyrir að hún hefur kannski efni á dýrari trefli en ég eða annar, finnst mér hún mjög góð í að sýna hér hluti og fatnað á góðu verði, koma með hugmyndir af samsetningum ofl.
Ef ég ætti 200 þúsund að eyða í trefil myndi ég alveg gera það, en persónulega væri það þá látlausari kashmírtrefill, endilega hönnunarfegurð sem mér þætti flottur, en ekki út merktur svo verðmiðinn standi utan á honum. (Burt séð frá umræðunni að 99% af LV varningi í heiminum eru eftirlíkingar, svo ef þú kaupir ekta vöru sem sæmir, þá er líklegast að flestir haldi hana eftirlíkingu.)
En með því að pósta um svona trefil, sem dæmi, hlýtur að vera pláss fyrir umræðu og álit -engin ljótsyrði- án þess að það sé talin neikvæðni?
Nema það megi bara kommenta “vá flott” við öllu?
Takk fyrir flott blogg Ása og hlakka til að lesa framvegis.
Skrifa Innlegg