fbpx

FALLEGRI AUGABRÚNIR MEÐ BRYNDÍSI KRISTÓFERS

ÍslandMakeup

Ég er ein af þeim sem fer aldrei í litun og plokkun og vil hafa augabrúnirnar eins náttúrulegar og hægt er. Ég hef varla plokkað á mér augabrúninar í mörg ár og kann bara ágætlega við mig þannig. Þrátt fyrir það vil ég að sjálfsögðu hafa flottar augabrúnir og mér finnst þær skipta mjög miklu máli fyrir andlitið – og kannski þess vegna hleypi ég ekki ókunnugum í þær.

Í sumar heyrði ég af stelpu sem heitir Bryndís Kristófers. Sagan var sú að annar eins augabrúnasnillingur hefði ekki stigið á þessa jörð. Ég tók því með fyrirvara, kinkaði kolli og pældi ekki meira í því. Fyrr en ég þurfti að fara í myndatöku og hugsaði með mér að eitthvað þyrfti ég að gera til að lappa upp á trínið og ákvað því að tékka á þessari nafntoguðu Bryndísi.

unnamed-10

… og hér sjáum við hvernig ég leit út nokkrum klukkutímum síðar ! Sjáið hvað þessar augabrúnir eru fínar :-)

Bryndís lagaði augabrúnirnar fyrir mig og kenndi mér í leiðinni með frábærum og einföldum trixum að móta augabrúnirnar og ná betur fram þessu náttúrulega útliti sem ég vil hafa.

Bryndís lærði “að gera” augabrúnir í París og eru fyrrum international eyebrow expert h já Benefit, sem segir kannski allt sem segja þarf. Ef þið viljið læra af þeirri bestu að þá mæli ég með að skrá sig á eyebrow-masterclass námskeiðið sem hún í samvinnu við NOLA.is eru að halda helgina 14.-15.nóvember.

11241934_955361097854926_4747950276427862608_o

 Maður þarf ekkert að kunna, bara mæta, læra og hafa gaman.

HÚSIÐ: BORÐSTOFUSTÓLARNIR FRÁ NORR11

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

8 Skilaboð

  1. Halldóra

    30. October 2015

    Vinnur hún á einhverri stofu?

    • Ása Regins

      30. October 2015

      Nei því miður að þá vinnur hún ekki á stofu.. því er frábært að geta komist til hennar með þessum hætti :-)

  2. Andrea

    30. October 2015

    Þetta er ekkert smá flott <3
    OG meiriháttar gaman að fara á svona námskeið með skemmtilegum konum. Vörurnar frá Nola eru líka snilld og möst til að gera flottar brúnir.
    Mæli með þessu námskeiði :)

  3. Gudridur Gunnlaugsdottir

    30. October 2015

    ahh fallegt!! Er að safna í svona fegurð :*

  4. Hildur Markúsdóttir

    1. November 2015

    Væri til í að koma á sunnudeginum 15 nóv, kl.15-17 :)

  5. Kristjana Kristjáns

    7. November 2015

    Verður haldið annað námskeið? í ljósi þess að uppselt var á þessi tvö:/