fbpx

ELIN KLING: ANDLITSNUDD FYRIR BETRA ÚTLIT

Makeup

Ég rakst á skemmtilegan póst á blogginu hennar Elinar Kling – thewall.elin-kling.com – í vikunni. Þar talar hún um að partur af hennar daglegu facial-rútínu sé að nudda á sér andlitið á morgnanna en hún vill meina að það sé ávísun á betra útlit.

 

ny-frisyr2

 

Í þessum sama pósti benti hún á þetta video hér að neðan og ég verð að segja að þetta er næstum því betra video en iittala videoið sjálft ! Nú er ég búin að kreista og kremja, fetta og bretta á mér andlitið fjóra morgna í röð og ég er ekki frá því að þessi rútína sé sömuleiðis komin til að vera í mínu lífi.

 

.. og það er ekki verra ef ég mun líta betur út fyrir vikið.

Er ekki ágætt að byrja vinnuvikuna á góðu andlitsnuddi fyrir framan spegilinn í fyrramálið ? Jú, ég held það nú ! :-)

OMMELLETTA MEÐ FERSKUM MOZZARELLA

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Reykjavík Fashion Journal

    12. January 2014

    Þetta er æðislegt! Sat í 10 mín fyrir framan tölvuna og nuddaði andlitið eins og fyrirsætan. Mér líður svo vel í húðinni, ég er sannfærð líka um að þetta hafi góð áhrif – ég ætla að reyna að venja mig á þetta reglulega :)

  2. Hilrag

    13. January 2014

    þetta er geggjað! prófa þetta í fyrramálið :P

    xx