.. bjóðum með sannri ánægju þeim ….
Sigríði Erlu. Ég myndi bjóða foreldrum mínum út að borða :) Þau eiga afmæli með stuttu millibili í nóvember og desember og voru að fagna 46 ára brúðkaupsafmæli fyrr í mánuðinum! Þetta væri því kjörið tækifæri að fagna ástinni og árunum sem fjölga.
Þyrí. Rausnarlega boðið af þér! Ég myndi bjóða manninum minum yndislega sem ég hef verið svo lánsöm að ganga með í gegnum lífið í 26 ár :-)
Ps. Takk fyrir þetta skemmtilega blogg og allar flottu hugmyndirnar og ljósmyndirnar, eigðu góðan dag :-)
Maríu Rut. Myndi bjóða vinkonu minni sem hefur verið minn klettur í gegnum brösugt námsár hjá mér! Þar sem ég er bara fátækur námsmaður væri æðislegt að geta boðið henni út að borða og þakka henni fyrir allt sem hún gerir fyrir mig.
.. á stórglæsilegt jólahlaðborð Fiski og Grillmarkaðarins. Vonandi eigið þið dásamlega jólastund í vændum, njótið vel og við óskum ykkur góðrar skemmtunar. Sendið mér mail á asareginsdottir@gmail.com eða á facebook og þannig kem ég gjafabréfinu áleiðis til ykkar. :-)
Ég vil þakka ykkur öllum kærlega fyrir þátttökuna, sem og falleg og skemmtileg komment. Í fullkomnum heimi hefði ég boðið ykkur öllum í jólahlaðborð en í staðinn hugsa ég fallega til ykkar og sendi ykkur hlýjar kveðjur héðan frá Ítalíu.
Skrifa Innlegg