fbpx

NEW IN – ADIDAS

FötHreyfingÍsland

IMG_6518

IMG_6571

IMG_6474

IMG_6448

IMG_6442

IMG_6429

 

Þar sem ég mun eyða jólunum á sólarströnd er kominn tími til að taka ræktina föstum tökum og fylgja æfingaprógraminu frá honum Villa einkaþjálfara sem er vel geymt hérna í tölvunni minni.

Það er ágætt að byrja daginn í spandexgallanum, því þrengra því betra. Svona hljóp ég í Virgin Active, gym-ið mitt, í morgun og gerði það sem yfirvaldið skipaði mér að gera ! Buxurnar eru frá Adidas búðinni í Kringlunni og þessir skór frá Stellu McCartney sömuleiðis. Ég myndi segja að liturinn á buxunum sjáist best á næst síðustu myndinni en þar sést hversu skærar þær eru. Mér finnst skipta máli að vera skemmtilega klædd í ræktinni en svona skærir litir hressa mig við og ég nenni frekar að koma mér af stað ef ég er þannig klædd. Ég lít betur út í speglinum, ég virka brúnni og allt verður bara betra :-)

Ef ykkur langar í smá tilbreytingu að þá ættuð þið að kíkja við í Adidas og að minnsta kosti máta þessar buxur – og auðvitað skóna, ég er viss um að þið munuð hafa jafn gaman að þessum fallegu litum og ég.

JÓLAPAKKARNIR

Skrifa Innlegg

11 Skilaboð

  1. Karen Lind

    27. November 2013

    Rosalega flottir skór!

    … og þú alltaf með myndirnar á hreinu – very nice!

    – ég á eins buxur – þær eru æði!

  2. Pattra S.

    27. November 2013

    Megababe! Þessar myndir láta manneskju sem veit ekki hvað líkamsrækt er langa í ræktina :)

  3. Andrea

    27. November 2013

    Hvað er að frétta ???? Mér finnst þú bara svo geðveikur kroppur að ég missti af skónum… skoða þetta aftur …. ÆÐI.is og taskan LOVE

    • Ása Regins

      27. November 2013

      hahah Andrea, ég held þú vinnir gjafabréfið á Fisk/Grillmarkaðinn fyrir þetta komment !!! ;-)

  4. Sonja Marsibil Þorvaldsdóttir

    27. November 2013

    Þú ert náttúrulega flottust! Buxurnar eru GEGGJAÐAAAR!! Ég þarf greinilega að kíkja í Kringluna ;)

  5. Hildur Einars

    27. November 2013

    Hotness overload ÁSA !! Þessar buxur er geggjaðar !!! Mun klárlega setja þær á óskalistann minn fyrir jólin ;) One love á ykkur E&E

  6. Helga Finns

    27. November 2013

    omg is this the real life? redhot!

  7. Þórdís Brynjólfs

    28. November 2013

    Þvílíkt flott. Það eru ekki allar konur sem púlla þessar buxur en þú gerir það svo sannarlega. Þú værir frábær kandídat í Adidas auglýsingar ;)

  8. Telma

    28. November 2013

    Geðveikar myndir! OG sjúklegar buxur! Hvað heita þær?

  9. Erna Björk Sigurgeirsdóttir

    28. November 2013

    Vá mér finnst þessar buxur vera trylltar og ekki skemmir flotti kroppurinn fyrir. :)