Frá því ég skrifaði síðast hefur ansi margt gott á daga okkar drifið. Ekki bara það að Emil hafi verið seldur til Udinese að þá erum við einum dásemdar gullmolanum ríkari. Elskulega dóttir okkar hún Andrea Alexa kom í heiminn þann 23.febrúar, heilbrigð og hraust. Hún fæddist í Verona og hér búum við enn með annan fótinn því það er bara um tveggja klukkustunda akstur á milli Udine og Verona. Í ágúst munum við flytja okkur yfir til Udine og kíkja svo yfir til Verona um helgar, enda ómögulegt að yfirgefa alveg borgina eftir öll þessi yndislegu ár.
Það hafa afar fáir fjölskyldumeðlimir séð hana Andreu Alexu okkar í eigin persónu og því er ég dugleg að pósta myndum af henni ( og auðvitað Emanuel ) á instagram/asaregins. Auk þess eru þetta allt ómetanlegar minningar fyrir mig og Emil sem ég prenta út og set í fjölskyldualbúmin.
En sú mikla blessun og gæfa það er að fá að fæða og klæða, ala upp og njóta barnanna sinna ♥
Skrifa Innlegg