fbpx

DANIEL WELLINGTON ÚR

Föt

Mig er búið að langa í Daniel Wellington úr í nokkur ár en aldrei látið verða að því, kannski vegna þess að ég á svo fínt úr sjálf. En eftir að hafa rekist svo oft á myndir af þessari einstaklega fallegu og klassísku hönnun undanfarið ætla ég að slá til og kaupa mér það við fyrsta tækifæri. Þessi vel hannaða og látlausa skífa og litríku ólar eru algjört augnakonfekt og fer svo vel á hendi. Einnig er hægt að skipta um ól eftir því sem við á sem gerir notkunarmöguleikana fjölmarga. Úrið á því við við öll tilefni, hvort sem það er dags daglega við vinnu/skóla, fínt jakkafataboð eða heitur dagur á ströndinni.

Eftir að hafa legið yfir þessu hugsa ég að ég muni kaupa mér Classic Glasgow Lady með silfurskífu og hvítri og blárri ól – og kannski rauða og blá til skiptanna. Seinna mun ég svo færa mig yfir í svart leður, kannski þegar það byrjar að hausta ?

Úrin eru til fyrir bæði kyn og alveg frábær afmælisgjöf t.d fyrir makann. Verðið er líka fínt en t.d það sem ég myndi kaupa mér kostar 175$ eða um 20.000 kr.

IT´S GREEN

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Ellen Agata

    24. May 2014

    Váá hvað þetta eru falleg úr! Skemmtilegt að það sé hægt að skipta um ól. Langar í..!!

  2. Sonja Marsibil Þorvaldsdóttir

    24. May 2014

    Vá – ekkert smá flott úr!

  3. Vaka

    24. May 2014

    Veistu hvort ég get pantað svona hingað á frón ?

  4. Abba

    25. May 2014

    Ótrúlega flott! Verst að Tommy boy er nýbúinn að eiga afmæli! :/

  5. Anna Reynisdóttir

    27. May 2014

    Ég er búin að vera að leita að úri í langan tíma og finn aldrei rétta úrið. Þetta er akkúrat úrið sem mig langar í! Ætli einhver búð á Íslandi selji þau?

  6. Sóley

    6. June 2014

    Ég á svona úr, ég hef ekki séð það í sölu hér á Íslandi en ég pantaði það í gegnum danielwellington.com og þeir senda útum allan heim :) Tók líka bara 4 daga að fá það sent heim alla leið að dyrum! Á einmitt nokkrar ólar til skiptanna.

  7. Unnur

    24. June 2014

    Þessi verða til í flestum skartgripabúðum á næstu vikum!!