Ljósm. Thelma Gunnarsdóttir.
Brjóstapúðinn er nýjasta afurð Heiðdísar Helgadóttur teiknara en hún á heiðurinn af þessari fallegu teikningu af mjólkurgangi kvennmannsbrjóstsins. Ef þið skoðið teikninguna vandlega má sjá fallegu bleiku slaufuna, tákn Krabbameinsfélagsins í bakgrunni. Púðinn er vandalega saumaður af Aðalheiði Sigfúsdóttur klæðskera. Mynstrið er silkiþrykkt á 100% ljóst bómullarefni og er hægt að taka púðaverið af og þvo í handþvotti.
Allur ágóði af sölu Brjóstapúðans rennur til styrktar Krabbameinsfélagsins og kostar hann 10.000 kr.
Hægt er að panta púðann á facebooksíðu Brjóstapúðans en innan skamms verður einnig gefið upp hvar hægt er að nálgast hann á fleiri stöðum og því hvet ég ykkur til að fylgjast vel með á síðunni þeirra á facebook.
Skrifa Innlegg