Dagbjört systir er mikið partýljón og kökukona og er algjör snillingur að halda flottar veislur. Jason sonur hennar varð þriggja ára á dögunum og sló hún því upp glæsilegri veislu þar sem litagleði, stemning og húmor réð ríkjum. Margar af hugmyndunum hafði hún fengið úr bloggi sem ég setti inn í haust þar sem ég póstað hugmyndum fyrir barnaafmæli, sjá HÉR – og hún systir mín útfærði þær síðan snilldarlega.
Sykurpúða-fígúrur settu skemmtilegan svip á afmælisborðið
Uppáhalds leikföngin notuð sem kökuskraut
Jason þriggja ára afmælisgaur
Spiderman sestur við borðið og horfir hugfanginn á allt húllumhæið :-)
Brjálæðislega flottir glimmer oreopops – borðarnir eru frá Søstrene Grene eru til í alskonar stærðum og gerðum
Þessi glæsilega og girnilega hvíta kaka er rjómahúðuð vatnsmelóna, skreytt með jarðaberjum, loftbelgum, dýrum og pelikönum.
Heimagerður gulur og bleikur sleikjó
Oreopops í sparibúningi !
Englakaka frá Jóa Fel – klikkar ekki !
Stjörnuljós, fánar, súkkulaði, rjómi og afmælissöngur.
.. og svo bláááása.. eins og ljón.. hahah..
Eins og þið sjáið að þá er þetta alvöru partý en ég fæ alveg stjörnur í augun á að horfa á þetta. Ég get því rétt ímyndað mér hversu glaður Jason var með allt þetta húllumhæ ! Hann ítrekað sagði mömmu sinni hvað hann væri “glaður og ánægður ” og hoppaði um eins og skopparabolti.
Dagbjört bauð uppá rjómalagaða kjúklingasúpu, súkkulaðiköku frá Jóa Fel sem hún breytti í alvöru partýbombu, æðislega skreytta vatnsmelónuköku, súkkulaðibrunn og ávexti. Að auki bjó hún til þessa súper flottu cake-pops úr oreo og sykurpúðum sem vöktu mikla lukku, bæði á meðal barna og fullorðinna. Sleikjóana bjó hún til sjálf úr gumpaste sem hún fékk í Allt í Köku en flest allt kökuskrautið fékk hún einnig þar. Súkkulaðibrunnurinn er þó í einkaeign :-)
Fánarnir, skrautpinnarnir og diskarnir eru að mestu fengið úr Tiger og Søstrene Grene. Dagbjört notaði síðan uppáhalds leikföngin hans Jasonar, dýr af öllum stærðum og gerðum, sem borðskraut en það setti svo sætan, skemmtilegan og persónulegan svip á afmælisboðið.
Skrifa Innlegg