Færslan er unnin í samstarfi við Wodbúð
Góðan daginn!
Til að auðvelda jólagjafavalið þá langar mig að koma með nokkrar hugmyndir. Ég tók saman vörur frá Wodbúð sem ég á og mæli með eða langar að eignast :)
- ICIW æfingabuxur – grænar. SNILLDIN við þessar buxur er að þú getur klippt neðan af þeim eins og þér hentar :) Algjör snilld fyrir þær sem þurfa á því að halda! Ég var að eignast svona svartar og ég elska þær strax. Þær skerast ekki inn í mittið…þið skiljið sem skiljið
2. Æfingabrúsi. Ég elska að drekka úr mínum brúsa og er alltaf með hann á mér! Hann heldur vatninu köldu/ heitu í langan tíma :)
3. Vikuplan! VÁ hvað ég þarf á þessu að halda… Algjör snilld fyrir óskipulagspésa eins og mig
4. Æfingateygjur. Mér finnst must að eiga svona teygjur í heimagymmið og svo þegar gymmin opna tekuru þær með þér í töskuna :) Æfingamöguleikarnir eru trilljón!
5. Nike Romaleos lyftingaskór – Fyrir lyftingakonuna þína. Hef heyrt að þeir séu geggjaðir en hef ekki prófað sjálf :)
6. AIM’N high support æfingatoppur – þennan topp þurfa allar konur að eiga :) Heldur ótrúlega vel og ég hef ekki notað annan topp síðan ég eignaðist mína…
7. AIM’N stuttbuxur – Væri mjög til í að eiga þessar heima á æfingu. Svo eru þær geggjaðar á litinn og mjög góðar fyrir næsta sumar :)
8. AIM’N hlírabolur – Miðað við hvað ég elska toppana mikið þá langar mig sjúklega að eignast þennan bol yfir! Og hann er í stíl við stuttbuxurnar omg
9. Nike Zoom Fly 3 hlaupaskór – Ég hleyp ekki mikið en geri það stundum! Hef heyrt frábæra hluti um þá og finnst þeir líka svo svo flottir :)
10. ICIW langermabolur – Ég eeelska að æfa í langermabolum og finnst þessi geggjaður. Hann væri fullkominn í safnið mitt amk!
Mæli með að fylgja wodbúð á instagram og skoða heimsíðuna þeirra :)
Þar fást allskonar sniðugar vörur sem henta vel með í jólapakkann!
Bestu kveðjur
Arnhildur Anna xxx
Skrifa Innlegg