Góðan daginn fallega fólk og gleðilega hátíð <3
Ég þekki það vel sjálf að það getur verið erfitt að halda sér í rútínu í jólafríinu og það getur verið svo auðvelt að bara “missa það” ….og þá líður sko engum vel.
Hér eru nokkrar hugmyndir frá mér til ykkar:
- Hreyfðu þig (haltu æfingaplaninu eða bjóddu skemmtilegu fólki í göngutúra)
- Drekktu vatnsglas fyrir hverja máltíð
- Borðaðu ávexti og grænmmeti (það er mandarínu season svo það er auðvelt)
- Borðaðu jafn og þétt yfir daginn (hver kannast ekki við að vilja spara sig fyrir fyrir kvöldmatinn osfrv)
- Plís ekki fá samviskubit yfir því að borða óhollt.. það er algjört mood kill svona um jólin
Ps. það var SVO falleg veður í dag… Vantar bara snjóinn!
Annars bara hafið það sem allra allra best og knúsið jólakúlurnar ykkar xxx
Arnhildur Anna xx
Skrifa Innlegg