Við hjúin erum miklir aðdáendur danska fatamerkisins SUIT sem við kynntumst eftir að við fluttum til DK -gæðaflíkur á sanngjörnu verði. Það er því gleðiefni að nýverið opnaði SUIT-REYKJAVÍK á Skólavörðustíg, fyrsta Suit flagship búðin og eftir að hafa séð myndir hlakka ég mikið til að heimsækja þessa vel hönnuðu verslun. Í kvöld verður slegið til opnunarpartý frá 20-22 sem verður upplagt fyrir okkar fyrstu heimsókn, náum jafnvel að klára jólagjafastússið okkar í leiðinni.
Annars er voðalega ljúft að vera komin á eyjuna fögru og ég er ekki frá því að Grinchinn í mér þykir bara nokkuð skemmtilegt að snjórinn hafi tekið svona vel á móti okkur.. Allavega þar til ég renn á hausinn í slabbinu, treystið mér, það mun gerast!
Sjáumst þar!
PATTRA
Skrifa Innlegg