Þennan frábæra forrétt fyrir hátíðirnar útbjó ég í samstarfi við Innnes. Risarækjur í Tabasco ofan á súrdeigs baguette með tómötum, avókadó, salati og ljúffengri sósu. Leikur við bragðlaukana! Mæli með að bera fram með ísköldu Cava og njóta í botn!
32 risarækjur (í kringum 270 g)
1 msk Tabasco sósa
Hvítlauksduft, laukduft, salt & pipar
1 msk ólífuolía
16 sneiðar af súrdeigs baguette
40 g smjör + 2 hvítlauksrif
150 g tómatar medley eða kirsuberja
1 avókadó
Salat
Steinselja
Sósa:
1/2 dl Heinz majónes
2 msk sýrður rjómi
2 msk safi úr sítrónu
1 msk Tabasco sósa (eða magn eftir smekk)
Hvítlauksduft, laukduft, salt & pipar
Aðferð
- Byrjið á því að blanda saman risarækjum, Tabasco sósu, ólífuolíu, hvítlauksdufti, laukdufti, salti og pipar í skál. Leyfið þessu að marinerast á meðan þið útbúið restina.
- Hrærið öllum hráefnunum saman í sósuna. Kryddið eftir smekk og bætið viðð Tabasco sósu eftir smekk. Smakkið ykkur til.
- Smátt skerið tómata og avókadó.
- Penslið baguette sneiðarnar með bræddu smjöri og hvítlauk. Dreifið á bökunarplötu með bökunarpappír og bakið í 7-10 mínútur eða þar til brauðið er orðið stökkt.
- Steikið risarækjurnar upp úr ólífuolíu á vel heitri pönnu þar til að þær eru orðnar bleikar og steiktar í gegn.
- Smyrjið sneiðarnar með sósunni. Rífið salatið og dreifið yfir hverja sneið eftir smekk.
- Því næst dreifið tómötum, avókadó, tveimur risarækjum, smá sósu og steinselju yfir salatið.
- Berið fram með meiri sósu og njótið.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg