HELGIN MÍN
Ég er búin að eyða allri helginni í íbúðinni. Taka upp úr kössum, ganga frá, setja saman húsgögn & flr. Ég sem kunni ekki að halda á borvél náði að læra og redda sér. Ég er stolt af mér, það verður að segjast. Gott að vera í svona aðstæðum til að gera bara hlutina. Núna er það bara að finna stað fyrir allt dótið okkar. Ég var ótrúlega dugleg að fara í gegnum allt áður en við fórum út og tók ekki með það sem við þurfum ekki. Það var ótrúlega góð tilfinning að fara í gegnum allt og síðan flytja út með allt það nauðsynlega og allt sem var óþarfi fékk nýtt heimili.
Gizem poplin shirt: hér.
Ég setti saman nokkur outfit í story í dag þegar ég tók fötin upp úr töskunni – getur horft hér. Það voru að koma svo fallegar vörur í Noomi og mig langar að sýna ykkur líka hér fyrir ykkur sem hafið áhuga. Ég er líka með kóða sem þið getið nýtt ykkur.
Kóði: ARNAPETRA gefur 20% afslátt
Lola vest cardigan: hér.
Basic rib singlet: hér.
Elska þessa toppa – nota þá rosalega mikið bæði heima og líka undir skyrtur eða blazer.
Rita knitted top: hér.
Þessi toppur er ekkert smá fallegur bæði svona og líka við pils sem hægt er að kaupa í stíl. Læt mynd fylgja hér fyrir neðan af pilsinu …
Rita knitted skirt: hér.
Endilega nýttu þér kóðan: ARNAPETRA ef þú finnur eitthvað fallegt<3
Eigðu góðan sunnudag. Ég er allavega komin með nóg af því að vera inni og ætla að skella mér í bæinn og kaupa mér blóm 💐🌸🌻🌼 bless 👋🏻
Skrifa Innlegg