Það er eitthvað svo notalegt að fá sér heitan og ljúffengan drykk í skammdeginu þegar farið er að kólna úti. Irish coffee er þá sannarlega viðeigandi en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hér kemur uppskrift að slíkum drykk í hátíðarbúningi en ég nota Fireball whiskey líkjör með heitu kanilbragði sem gerir drykkinn svo einstaklega ljúfan.
Fyrir einn
6 cl Fireball líkjör
250 ml kaffi
2 tsk púðursykur
Rjómi
Súkkulaðispænir
Kanill
Aðferð
- Blandið saman púðursykri og kaffi í glas. Hrærið saman þar til púðursykurinn er uppleystur.
- Hellið Fireball whiskey útí og hrærið saman.
- Léttþeytið rjóma. Mér finnst gott að hann sé léttur og froðukenndur.
- Setjið 2-3 msk af rjómanum ofan á drykkinn og stráið súkkulaðispæni og kanil yfir. Njótið vel.
GÓÐA HELGI & NJÓTIÐ VEL! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg