Febrúar er mánuður ástarinnar og að því tilefni viljum við minna á mikilvæga daga sem eru framundan…
Valentínusardagurinn – 13.febrúar
Konudagurinn – 23.febrúar
Fagnar þú dögum ástarinnar? Trendnet mælir með því, þó það sé ekki nema bara til að gera sér glaðan dag … og kannski til að borða smá súkkulaði.
Sea Salted Toffee
Við elskum karamellusúkkulaði en að búa til hina fullkomu karamellu getur verið snúið. Við höfum leikið okkur með þessa uppskrift í langan tíma. Til að ná fram karamellubragðinu bökuðum við mjólkina í sólarhring eða þar til að hún tók á sig rjómakenndan karamellukeim sem minnir einna helst á Dulce de leche. Því næst stráðum við yfir súkkulaðið sjávarsalti frá Saltverk til þess að fullkomna bragðið sem við leituðum að. Útkoman er þessi karamellukenndi draumur, Sea Salted Toffee.
Lakkrís + Raspberry
Ástarlínan er seld í stökum stykkjum og er einnig fáanleg í glæsilegri gjafaöskju og er því tilvalin gjöf fyrir uppáhalds manneskjuna þína. Hægt er að kaupa gjafaöskjuna í verslun Omnom út á Granda frá og með 10.febrúar, eða HÉR
Ástin er í loftinu og umlykur allt. Njótum!
TRENDNET
Skrifa Innlegg