fbpx

TRENDNÝTT

VERUM SÆL MEÐ GÓÐA FERÐ – FERÐUMST INNANHÚSS

FÓLK

Rúv stóð fyrir  COVID-19 þætti sem tileinkaður var ungu fólki, í þættinum var frumflutt nýtt lag og myndband þar sem einvala lið tónlistarfólks sameinaði krafta sína og flutti lagið Ferðumst innanhúss. En það er það sem þríeykið ráðleggur okkur að gera um páskana, tökum mark á því.

Lærum textann við lagið hér og setjumst fyrir framan varðeldinn í stofunni og syngjum hann saman í gegnum símann.

PRESSIÐ Á PLAY

Ferðumst innanhúss

Þú veist það eru viðsjárverðir tímar
með landamæri lokuð víðast hvar
en sútum ekki örlög, heldur húkkum okkur far
í ferðalag og freistum gæfunnar

Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er tækifæri‘af allra bestu gerð
já tínum til vort trúss og ferðumst innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða ferð

Í tveggja metra fjarlægð kæri vinur
og ekki fleiri‘en nítján á sama stað
í takmörkunum lífsins þá líst mér best á það
að bregða mér í ilmolíubað

Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er heima-spa af allra bestu gerð
ohh við elskum svona stúss, að dúllast innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða ferð

Ef leiðigjörn er orðin blessuð stofan
og eldhúsið svo hversdagslegt og grátt
þá ævintýrin bíða, það toppar enda fátt
góða bílskúrsútilegu, yfir nátt

Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er útilega af allra bestu gerð
já tínum til vort trúss og kúrum innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða ferð

Nú þurfa allir þétt að standa saman
og koma COVID-stríðinu á skrið
ef efla viljum lýðheilsu og finna sálarfrið
við hlýðum Víði og ferðumst heima við!

Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er upplifun af sérstökustu gerð
já, fáum úr því rúss, að ferðast innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða innanhússferð
góða ferð, verum sæl með góða ferð

//
TRENDNET

BIO EFFECT GLEÐUR HEILBRIGÐISSTARFSFÓLK

Skrifa Innlegg