fbpx

TRENDNÝTT

SIMPLE FÆST NÚ Á ÍSLANDI

KYNNING

Simple eru nýjar húð- og húðhreinsivörur á Íslandi sem innihalda aðeins efni sem eru góð fyrir húðina en vörumerkið er breskt og er eitt fremsta vörumerkið í húðvöru fyrir andlit í Bretlandi.

Vörurnar eru án allra ilm-, litar- og aukaefna og án alkóhóls.

 „Kindness is at the heart of everything we do“ er það sem Simple stendur fyrir og markmiðið er að bjóða upp á vörur fyrir allar húðtegundir og líka viðkæma húð.

Það sem er ekki í vörunum er alveg jafn mikilvægt og það sem er sett í þær og í Simple vörum eru einungis notuð innihaldsefni sem eru best fyrir húðina og ýta undir jafnvægi hennar. Á stundum getur húðin okkar verið viðkvæm vegna mengunar, stress, veðurfarsbreytinga, skorti á svefni o.s.frv og þá er gott að nota hreinar gæðavörur til að ná jafnvægi aftur.

Simple vörur eru einnig prófaðar á allan mögulegan hátt og eru án allra ofnæmisvaldandi efna og eru alls ekki prófaðar á dýrum. Vörurnar eru viðurkenndar af PETA sem Cruelty free vörur. 

Vörurnar eru fáanlegar í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaup, Lyfju og Lyfju netverslun. 

Simple cleansing wipes
Dásamlegir hreinsiklútar án allra ilm- og aukaefna, þeir eru mjúkir viðkomu, hreinsa allan farða vel og gefa húðinni um leið raka og vítamin. Klútarnir henta vel viðkvæmri húð.

Micellar cleansing water
Micellar hreinsivatn sem hreinsar húðina vel, gefur henni góðan raka og inniheldur andoxunarefni og góð vítamín fyrir húðina. Hentar mjög vel fyrir viðkvæma húð.

Moisturising facial wash
Andlitshreinsir sem hreinsar farðann og húðina án þess að þurrka hana. Gefur góðan raka, inniheldur andoxunarefni og góð vítamín fyrir húðina.

Eye make-up remover
Augnfarðahreinsir sem hentar mjög vel viðkvæmri húð, gefur henni raka, andoxunarefni og vítamín. Fjarlægir einnig vatnsheldan maskara.

Hydrating Light moisturiser
Rakagefandi og létt andlitskrem sem inniheldur engin ilm- né litarefni, paraben né alkóhól. Inniheldur andoxunarefni og góð vítamín fyrir húðina.

Sheet maskar
Nokkrar tegundir af möskum sem gera frábæra hluti fyrir húðina.  Þeir innihalda andoxunarefni, steinefni og vítamín og henta öllum húðgerðum. Þú ert aðeins 15 mínútum frá heilbrigðri og ljómandi húð með sheet möskunum.

Ekki skemmir fyrir að vörurnar eru allar á góðu verði.
Við bjóðum SIMPLE velkomið til Íslands!

//
TRENDNET

HUGMYNDIR AÐ FALLEGUM PÁSKA EFTIRRÉTT

Skrifa Innlegg