fbpx

TRENDNÝTT

PÁSKAEGG Í TAKMÖRKUÐU UPPLAGI FRÁ OMNOM

KYNNING

Við erum búin að finna tísku-páskaeggið í ár og það er frá Omnom.

Páskaeggið frá Omnom, sem nefnist Mr. Carrots, kemur í takmörkuðu upplagi og er aðeins hægt að panta í forsölu á heimasíðu þeirra – omnomchocolate.com.

Páskakanínan hefur verið í bígerð í tvö og hálft ár og er alls ekkert hefðbunið páskaegg. Hver og ein kanína er handgerð úr lakkríssúkkulaði og mikið er lagt í umbúðirnar.

Við höfðum smá áhyggjur af því að Mr. Carrots væri eitthvað reiður en fengum þessi svör frá Omnom:

“Ekki láta brúnaþungt yfirbragð hans blekkja ykkur, því hann er mjög hamingjusöm og lífsglöð kanína sem elskar gulrótarkökur meira en allt.”

Páksakanínan er skemmtileg viðbót í flóruna fyrir páskana – er kominn tími til að skipta út hinu hefðbundna páskaeggi á móti Mr. Carrots?

Forsala hefst á morgun – miðvikudaginn 13. mars – HÉR.

//TRENDNET

 

RYAN GOSLING BYRJAÐI UNGUR AÐ BRÆÐA HJÖRTU

Skrifa Innlegg