fbpx

TRENDNÝTT

Marine Vacth er andlit les Beiges frá Chanel

FÓLKKYNNING

Nýr farði frá Chanel sem veitir raka og ljóma!

Chanel gaf nýlega út farða sem tilheyrir Les Beiges línunni þeirra. Það sem einkennir Les Beiges snyrtivörulínuna frá Chanel er einfaldleiki, ljómi og að draga fram það besta í þínu útliti. Þess vegna vorum við hjá Trendnet ótrúlega spennt yfir þessari nýju viðbót við Les Beiges línunni.

“Beyond makeup, Les Beiges is a spirit.
It embodies natural beauty and simplicity, let it surface your radiant glow
with new nude makeup looks from the collection”

Chanel Les Beiges Healthy Glow Foundation Hydration & Longwear

Náttúrulegt er stílinn eins og segir í myndbandinu hér að ofan.

Formúlan er silkimjúk, jafnar út mislit og veitir allt að tólf klukkustunda raka. Farðinn er einstaklega léttur á húðinni, veitir miðlungsþekju sem auðveldlega er hægt að byggja upp. Áferð húðarinnar frá farðanum verður engri lík, húðin verður einstaklega fersk, náttúruleg, ljómandi og sest ekki í fínar línur. Þetta er farði sem er fullkomin dagsdaglega og við fínni tilefni.

Marine Vacth er andlit herferðarinnar og sést hér með farðann. Hún hefur lengi vel unnið með Chanel í gegnum árin og eitt af því sem hún elskar mest við Chanel er það að það er aldrei nein pressa á að breyta hver þú ert.

Marine Vacth on CHANEL: “I like the fact that it is a House whose history is very present. Its past generates fantasy… It’s a House that is very attentive to respecting the personality of all those who represent it. At CHANEL you never feel any pressure to change who you are.”

Les Beiges farðinn er búinn að vera í prófun hjá okkur á Trendnet og fær okkar meðmæli!

//
TRENDNET

PLAYROOM: FJÖLSKYLDU FYRIRTÆKI MEÐ VISTVÆNA STEFNU

Skrifa Innlegg