Líftæknifyrirtækið Primex kynnir Liposan – íslenskar trefjar sem hjálpa til við þyngdarstjórnun. LipoSan eru náttúrulegar trefjar úr hafinu við Íslandsstrendur. Trefjarnar binda fitu úr fæðunni og draga úr upptöku fitu í meltingarveginum. LipoSan hjálpar því til við þyngdarstjórnun og bætir meltinguna ásamt því að hafa jákvæð áhrif á kólesterólmagn í blóði.
LipoSan bætir meltinguna með því að styðja við heilbrigða þarmaflóru. Nýlegar rannsóknir hafa einnig sýnt fram á áður óþekkta eiginleika efnisins, m.a. að vinna gegn öldrun og auka þol.
LipoSan er tilvalið fyrir þá sem eru á lágkolvetna- og Ketó mataræði. Náttúrulegar trefjar og c-vítamín bæta meltinguna og gefa aukna orku.
Með því að minnka meltanlega fitu, binda kólesteról og gall stuðlar LipoSan að viðhaldi eðlilegs kólesterólmagns í blóðinu. Til að framleiða gall notar líkaminn uppsafnað kólesteról úr líkamanum, en líkaminn endurnýtir meirihlutann af því galli sem hann notar í meltingarveginum. Þessir eiginleikar sem bæta almenna heilsu, efla þol og halda aukakílóum í skefjum gera Liposan að nútímalegu lífsstílsfæðubótarefni.
LipoSan fæst í Heilsuhúsinu, Hagkaupum og öllum helstu apótekum landsins.
Þið finnið meiri upplýsingar um LipoSan HÉR.
Primex, sem er framleiðandi LipoSan, er íslenskt líftæknifyrirtæki staðsett á Siglufirði sem sérhæfir sig í þróun og sölu á kítósanvörum fyrir fæðubótarefni, lækningatæki og ýmsa aðra notkun. Frá árinu 1999 hefur Primex unnið að því að breyta hráefni sem áður var mengandi úrgangur í verðmætar afurðir sem bæta lífsgæði manna og dýra.
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg