fbpx

TRENDNÝTT

Kvennalið KR semur baráttulag fyrir bikarleikinn

FÓLKKYNNING

Það er vel þekkt að lið sem eru á leið á stórmót eða úrslitaleiki búa til stemningslag með þekktum flytjendum.  Ensku landsliðin í den gerðu þetta reglulega og unnu með hljómsveitum eins og New Order, The Farm og hver getur gleymt laginu Vindaloo með Fat Les.  En það er nokkuð langt síðan þetta var gert síðast og þessi flotta hefð virðist vera að leggjast af.

Því má breyta …

Nú hefur kvennalið KR, sem spilar úrslitaleik í Mjólkurbikarnum á laugardaginn, endurvakið þessa stórskemmtilegu hugmynd.  Frá því að íslenska landsliðið í handbolta söng Við gerum okkar besta þá hefur ekkert íslenskt félagslið stigið jafn afgerandi inn í upptökustudíó og núna.  Lagið, sem heitir Meistaravellir, var unnið í miklu samstarfi við Steinunni Jónsdóttir sem þekkt er úr Amabadama og Reykjavíkurdætrum.  Steinunn, sem skrifaði texta lagsins, dreif einnig Röggu Holm, sem samdi og flutti rapp kaflann í laginu, og söngkonuna Matthildi með sér í studíóið.  Úlfur Eldjárn sá um tónlistarhliðina að mestu.  

Lagið er baráttulag og þótt það fjalli um KR þá er einnig hægt að sjá víðari merkingu í því fyrir kvennaboltann almennt hér á landi.  Þetta er því liður að auka þá athygli sem íslenski kvennaboltinn er að fá á Íslandi og beina kastljósinu að þeim miklu gæðum sem eru þar til staðar. Trendnet tekur stolt þátt í þeirri vegferð og vonar að þið pressið öll á PLAY fyrir konur, íslenskar fótboltakonur.

Allir á völlinn ;)

Lag: Steinunn Jóns og Úlfur Eldjárn 
Upptökustjórn: Múskat músík – muskat.is
Texti: Steinunn Jónsdóttir og Ragnhildur Jónasdóttir
Gnúsi Yones og Studio History

//
TRENDNET

TRENDNET FAGNAR 7 ÁRA AFMÆLI - SJÖA Í GJÖF FYRIR LESENDUR

Skrifa Innlegg