fbpx

TRENDNÝTT

HÚS SEM VEX MEÐ HVERRI FLÍK

KYNNING

As We Grow tekur þátt í Sumarmarkaði Reykjavíkurborgar á Hjartatorgi föstudaginn 14. ágúst og laugardaginn 15 ágúst milli kl. 11 og 17, með litríkum flíkum sem er afrakstur sameiginlegs verkefnis íslenskra hönnuða og handverksfólks í Síerra Leóne á vegum velgerðarsjóðsins Aurora.

Sierra Leo­ne. Sweet Salone. Hljóm­ar býsna líkt, enda dreg­ur seinna nafnið dám af því fyrra; Vest­ur-Afr­íku­ríki, sem í rúm­an ald­ar­fjórðung var nán­ast stöðugt í heimsfrétt­un­um vegna alls kyns hörm­unga. Skemmst er að minn­ast tíu ára blóðugr­ar borg­ara­styrj­ald­ar til árs­ins 2002 og ebólufar­ald­urs árið 2014. Sweet Salone er aft­ur á móti hönn­un­ar­verk­efni á vegum velgerðarsjóðsins Aur­oru og felst í að stefna sam­an ís­lensk­um hönnuðum og hand­verks­fólki í Síerra Leóne – eins og landið nefn­ist á ís­lensku.

Hönn­un­ar­verk­efnið snýst um að As We Grow hjálpi hand­verks­fólk­inu þar ytra til að auka virði hand­verks síns, leiðbeinir því með verklag og annað slíkt og síðan að koma vör­un­um á markað. Allar vörur sem búnar eru til undir þessu samstarfi eru hannaðar undir merkjum AS WE GROW X SWEET SALONE. Hver flík er merkt með nafni og sögu þeirrar handverksmanneskju sem skapað hefur vöruna. Hugmyndafræðin að baki Sweet Salone verkefnisins passar einstaklega vel við hugsunina að baki As We Grow, að vita hvaðan varan kemur frá hugmynd að tilbúnum hlut. Við trúum því af öllu hjarta að með því að deila hugmyndum okkar, með því að vinna saman og læra hvert af öðru getum við haft jákvæð áhrif á umhverfi okkar og bætt líf annarra.

Foday, klæðsker­inn, sem As We Grow vinnur með, er að byggja hús fyr­ir fjöl­skyldu sína. Í hvert skipti sem hann sel­ur kjól get­ur hann keypt nokkra múr­steina. Húsið er því sannkallað As We Grow hús sem vex með hverj­um kjól.

Þær vörur og hugmyndir sem sprottið hafa af þessu tvíhliða samstarfi hafa hlotið góðan hljómgrunn. Frá fyrstu skrefum hafa gæði varanna aukist til muna og hönnuðum tekist að hvetja handverskfólkið að stíga út fyrir sitt þægindasvið með góðum árangri. Í sameiningu hefur tekist að framleiða nýjar vörur sem koma beint úr ranni lista- og handverksfólks í Sierra Leone eftir íslenskri hönnun.

Með því að taka þátt í þessu verkefni er það von okkar að geta stutt hönnunar- og
handverksiðnaðinn í Sierra Leone og lagt okkar af mörkum við að varðveita handverk og hráefni sem annars myndu jafnvel glatast.

Á Íslandi má finna vörurnar í verslun As We Grow að Garðastræti 2, 101 Reykjavík.

//TRENDNET

ÖLL ORÐIN SEM ÉG FANN

Skrifa Innlegg