fbpx

TRENDNÝTT

H&M Í SAMSTARF MEÐ PRINGLE OF SCOTLAND

KYNNING

 

H&M x Pringle of Scotland er nýtt samstarf sem kynnt var til sögunnar í morgun. Línan einkennist af hefðbundnum prjónafatnað sem fengið hefur sportlegan snúning. Pringle of Scotland línan var hönnuð af hönnunarteymi H&M í samstarfi við Pringle í Skotlandi og verður línan fáanlega um allan heim, þar á meðal í H&M á Íslandi, frá miðjum október.

Arfleið skosku hálandann einkennir línuna – en þó með fíngerðara ívafi. Lykilflíkur línunnar eru peysur úr þykkri ullarblöndu sem státa af hinu klassíska tígulmunstri sem Pringle er hvað þekktast fyrir. Peysukjólar með rennilásum, notalegar hettupeysur, aðsniðnar leggings, þykkar húfur og klútar með munstri.

Litapalletta línunnar kemur skemmtilega á óvart: haustleg blanda af klassískum sinnepsgulum, ljósgráu og kexbrúnu ásamt hressandi neongulum lit sem veitir línunni mun nútímalegra yfirbragð. Í línunni má finna endurunnið pólýester og lífræna bómull ásamt notalegri ull og sléttum viskósatrefjum.

Dýravinir geta einnig glaðst yfir því að geta verið í stíl við fjórfætta vini sína; í línunnni má finna peysur fyrir hunda í samsvarandi munstrum og litum.

 

„Pringle of Scotland á sér langa sögu og hefur samstarfið við H&M verið okkur mikill innblástur. Við erum alltaf að leita að nýjum leiðum til að tjá sögu okkar í gegnum prjónaflíkur og við vonum að þessi nýjasta sportí útgáfa af hinni frægu tígumunstruðu peysu muni gleðja núverandi viðskiptavini okkar og ná til enn fleiri í gegnum H&M “ segir Katy Wallace, vörumerkjastjóri hjá Pringle of Scotland.

 

„Samstarfið við Pringle of Scotland, vörumerki með svo ríka og glæsilega sögu, hefur verið virkilega skemmtileg upplifun fyrir hönnunarteymi H&M. Við höfum unnið með hið þekkta tígulmunstur og nútímavætt útlitið og gert það meira í takt við íþróttafatnað. Við erum stolt af því að notast við endurunnuið pólýester, ull og lífræna bómull. Ég hlakka til að sjá viðskiptavini okkar klæðast flíkunum á sinn hátt, “segir Maria Östblom, yfirhönnuður kvenfatnaðar hjá H&M.

//
TRENDNET

Áhugafólk um tísku má ekki missa af þessu: House of Cardin verður sýnd á RIFF

Skrifa Innlegg