fbpx

TRENDNÝTT

Birta Guðjónsdóttir ráðin listrænn stjórnandi Listar án landamæra

FÓLKKYNNING

Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri og myndlistarmaður, hefur verið ráðin listrænn stjórnandi Listar án landamæra.


Birta er einn fremsti sýningarstjóri landsins. Hún var m.a. sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum 2019, sýningu Hrafnhildar Arnardóttur / Shoplifter og einn af fjórum sýningarstjórum Momentum 8 – Norræna tvíæringsins í samtímamyndlist, í Moss, Noregi. Síðustu ár hefur Birta stýrt yfir 40 sýningum í helstu listrýmum og listasöfnum hérlendis sem og víða erlendis, m.a. í Berlín, Amsterdam, Melbourne, New York, Sánkti Pétursborg og á Norðurlöndunum. Birta var safnstjóri Nýlistasafnsins árin 2009 til 2011, listrænn stjórnandi sýningarýmisins 101 Projects í Reykjavík og var sýningarstjóri í SAFNi, samtímalistasafni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur á árunum 2005 til 2008. Á árunum 2002 til 2013 rak hún sýningarýmið Gallerí Dvergur í kjallara heimilis síns í Reykjavík. Þá hefur Birta einnig sýnt sín eigin verk á fjölda sýninga, bæði samsýningum og einkasýningum.


Hrafnhildur (Shoplifter) og Birta Guðjónsdóttir

Birta hefur tekið þátt í fjölmörgum norrænum og alþjóðlegum verkefnum er snúa að sýningarstjórn ásamt því að skrifa um íslenska og erlenda myndlist. Birta hefur starfað sem  stjórnarmeðlimur í Listfræðafélagi Íslands, varastjórnarmeðlimur í Safnaráði, ritstjórnarmeðlimur íslenska listtímaritsins Sjónauka, meðlimur í stjórn Nýlistasafnsins í Reykjavík og stjórnarmeðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna; SÍM. Auk þess hefur hún setið í fagnefndum Listaháskóla Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.

Birta er með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, MFA gráðu í myndlist frá frá Piet Zwart Institute í Rotterdam i Hollandi og nam listfræði (Critical and Pedagogical Studies) við Listaakademíuna í Malmö.

 
Atli Már, List án Landamæra
List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list fatlaðra listamanna. Hátíðin hefur verið haldin síðan 2003 og sýnir hún allar listgreinar. 
//
TRENDNET

H&M og JOHANNA ORTIZ KYNNA NÝJA LÍNU

Skrifa Innlegg