Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri og myndlistarmaður, hefur verið ráðin listrænn stjórnandi Listar án landamæra.
Birta er einn fremsti sýningarstjóri landsins. Hún var m.a. sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum 2019, sýningu Hrafnhildar Arnardóttur / Shoplifter og einn af fjórum sýningarstjórum Momentum 8 – Norræna tvíæringsins í samtímamyndlist, í Moss, Noregi. Síðustu ár hefur Birta stýrt yfir 40 sýningum í helstu listrýmum og listasöfnum hérlendis sem og víða erlendis, m.a. í Berlín, Amsterdam, Melbourne, New York, Sánkti Pétursborg og á Norðurlöndunum. Birta var safnstjóri Nýlistasafnsins árin 2009 til 2011, listrænn stjórnandi sýningarýmisins 101 Projects í Reykjavík og var sýningarstjóri í SAFNi, samtímalistasafni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur á árunum 2005 til 2008. Á árunum 2002 til 2013 rak hún sýningarýmið Gallerí Dvergur í kjallara heimilis síns í Reykjavík. Þá hefur Birta einnig sýnt sín eigin verk á fjölda sýninga, bæði samsýningum og einkasýningum.
Hrafnhildur (Shoplifter) og Birta Guðjónsdóttir
Birta hefur tekið þátt í fjölmörgum norrænum og alþjóðlegum verkefnum er snúa að sýningarstjórn ásamt því að skrifa um íslenska og erlenda myndlist. Birta hefur starfað sem stjórnarmeðlimur í Listfræðafélagi Íslands, varastjórnarmeðlimur í Safnaráði, ritstjórnarmeðlimur íslenska listtímaritsins Sjónauka, meðlimur í stjórn Nýlistasafnsins í Reykjavík og stjórnarmeðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna; SÍM. Auk þess hefur hún setið í fagnefndum Listaháskóla Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.
Birta er með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, MFA gráðu í myndlist frá frá Piet Zwart Institute í Rotterdam i Hollandi og nam listfræði (Critical and Pedagogical Studies) við Listaakademíuna í Malmö.
TRENDNET
Skrifa Innlegg